Bæjarráð
Bæjarráð fer með fjármála- og framkvæmdastjórn sveitarfélagsins ásamt bæjarstjóra. Ráðið hefur yfirumsjón með rekstri allra stofnana á vegum sveitarfélagsins. Bæjarráð heyrir beint undir bæjarstjórn. Í bæjarráði eiga sæti þrír bæjarfulltrúar sem bæjarstjórn kýs í júní til eins árs í senn, og þrír til vara.
Auk bæjarfulltrúa á bæjarstjóri rétt á að sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboði, sem fulltrúa á í bæjarstjórn, að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt.