Fjárfestingar og rekstur ársins 2023
Bæjarstjórn Vesturbyggðar tók ársreikning sveitarfélagsins fyrir í fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær, miðvikudaginn 24. apríl.
Aldrei hefur verið fjárfest fyrir jafn mikið og á árinu 2023 en hlutur sveitarfélagsins í fjárfestingum ársins nam 417 milljónum króna.
Skrifað: 25. apríl 2024
Stærstu fjárfestingarnar voru kaup á nýjum slökkvibíl á Bíldudal, ný slökkvistöð og Áhaldahús á Bíldudal, stækkun leikskólans Arakletts á Patreksfirði og endurbætur á Vatneyrarbúð sem verður formlega opnuð í maí.
Áfram er áformað að fjárfesta verulega í innviðum sveitarfélagsins á komandi árum.
Skuldaviðmiðið í árslok 2024 er 87% en gert er ráð fyrir í reglugerð um fjárhagsleg viðmið og efirlit með fjármálum sveitarfélaga að skuldaviðmiðið fari ekki yfir150%.
Lántökur á árinu voru 259 milljónir en gert hafði verið ráð fyrir lántöku uppá 320 milljónir. Afborganir langtímalána námu 170,5 milljónum.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er 11 milljón króna tap sem er nokkuð undir áætlun sem gerði ráð fyrir 83 milljón króna hagnaði. Munar þar mestu um gjaldfærslu vegna brúar lífeyrissjóðs uppá 71,5 milljónir, varúðarniðurfærslu á viðskiptakröfum í hafnarsjóði vegna óvissu um álögð aflagjöld ásamt fjármagnsgjöldum sem eru 22% hærri en áætlun gerði ráð fyrir.