Framboð til heimastjórna
Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði til heimastjórnar og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr. Þau sem gefa sérstaklega kost á sér í býðst að kynna sig og sín áhugamál á þessari síðu. Kynningar verða settar inn jafnóðum og þær berast, tekið verður við kynningum á netfangið muggsstofa@vesturbyggd.is til föstudags 3. maí klukkan 13:00.
Framboð til heimastjórnar Arnarfjarðar
Jón Þórðarson
Gilsbakka 8, 465 Bíldudal
Ágætu íbúar Arnarfjarðar í Vesturbyggð.
Ég, Jón Þórðarson, Gilsbakka 8 465 Bíldudal, hef ákveðið að bjóða mig fram til heimastjórnar í komandi kosningum 4. maí 2024.
Það geri ég vegna áhuga um míns og væntumþykju á því samfélagi sem við byggjum. Það verður væntanlega af ýmsu að taka á því sviði er heimastjórnum er ætlað. Væntanlega koma þar umhverfismál inn, svo og mörg önnur málefni. Mín trú er að þetta fyrirkomulag er varðar heimastjórnir muni hafa þegar fram líða stundir jákvæð áhrif á okkar samfélag.
Sumir þekkja mig og vita hvað ég hef fengist við í gegnum ơðina, en það er ýmislegt. Til dæmis; sjómennska, fiskvinnsla, útgerð, endurbygging mannvirkja, verslunar rekstur og ferðaþjónusta svo nokkuð sé nefnt.
Ég er tilbúinn til að vinna með hverjum sem er að framgangi okkar góða samfélags á ýmsum sviðum ef ég
fæ brautargengi til í kosningum 4. maí 2024.
Góðar kveðjur
Jón Þórðarson, Bíldudal.
Rúnar Örn Gíslason
Dalbraut 16, Bíldudal
Kæru nágrannar,
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í heimstjórn Arnarfjarðar.
Ég fæddist árið 1999 á Bíldudal og ég er í sambúð með Emilíu Söru Húnfjörð og eigum við saman einn strák og annar á leiðinni. Ég er menntaður í kerfisstjórnun og starfa sem upplýsingatækni fulltrúi hjá Arnarlax. Einnig er ég meðlimur slökkviliðs Vesturbyggðar ásamt björgunarsveitarinnar Kóps.
Ég vill nýta heimstjórnir til þess að tryggja einbeitingu og forgangsröðun á því sem okkur heimamönnum þykir mikilvægast. En fyrir mér eru félagsmál allra hópa, fjölskyldumál, íþróttastarfsemi og umhverfismál mikilvægust í augnablikinu.
Lykilatriði heimastjórnar fyrir mig er byggð á trausti, virðingu og þekkingu. Með trausti samfélagsins treysti ég sjálfum mér til þess að takast á við verkefni heimastjórnar með metnaði og virðingu fyrir samfélaginu að leiðarljósi.
Rúnar Örn Gíslason
Dalbraut 16, Bíldudalur
Framboð til heimastjórnar Patreksfjarðar
Gunnar Sean Eggertsson
Hjöllum 13, Patreksfirði
Kæru Patreksfirðingar,
Ég gef kost á mér til setu í heimastjórn Patreksfjarðar.
Ég er fæddur árið 1983 og hef mest alla mína ævi búið á Patreksfirði. Ég er giftur Lilju Sigurðardóttur hjúkrunarfræðingi og eigum við saman þrjú börn. Ég er vélfræðigur að mennt og rek Vélaverkstæði Patreksfjarðar. Ég starfa jafnframt sem varðstjóri í slökkviliði Patreksfjarðar ásamt því að hafa tekið þátt í ýmsum félagsstörfum.
Ég brenn fyrir samfélaginu sem ég bý í og set mig vel inn í þau mál sem eru í gangi hverju sinni. Ég sat í skipulags- og umhverfisráði árin 2018-2022 og hef verið varamaður síðan 2022. Ég tel að mínir kraftar muni nýtast í heimastjórn Patreksfjarðar þar sem reynsla mín og þekking á samfélaginu muni koma að góðum notum og vonast ég eftir ykkar stuðningi.
Gunnar Sean.
Rebekka Hilmarsdóttir
Aðalstræti 69, Patreksfirði
Kæru íbúar,
Ég gef kost á mér til setu í heimastjórn Patreksfjarðar.
Ég er fædd á Patreksfirði 1984 og ólst upp í Kollsvík í fyrrum Rauðasandshreppi. Ég er lögfræðingur að mennt og starfa sem sérfræðingur í matvælaráðuneytinu.
Ég hef starfað í opinberri stjórnsýslu um árabil, m.a. í málefnum er snúa að landbúnaði og sjávarútvegi. Þá gengdi ég starfi bæjarstjóra Vesturbyggðar árin 2018-2022. Einnig hef ég setið í stjórnum ýmissa félaga og ráða, m.a. í skipulags- og umhverfisráði Vesturbyggðar.
Ég brenn fyrir málefnum svæðisins og í trausti ykkar vil ég leggja mitt á vogaskálarnar til að samfélag okkar haldi áfram að eflast og dafna. Ég tel að þekking mín á svæðinu, reynsla og menntun komi til með að nýtast vel í þeim verkefnum sem heimastjórn Patreksfjarðar verða falin í sameinuðu sveitarfélagi.
Rebekka Hilmarsdóttir.
Sigurjón Páll Hauksson
Mýrum 1, Patreksfirði
Sigurjón Páll Hauksson heiti ég og er ævinlega kallaður Palli Hauks. Ég vill bjóða mig fram til setu í heimastjórn Patreksfjarðar. Ég er öku og vinnuvélakennari og hef starfað sem slíkur ásamt vinnuvélastjórn hverskonar í áratugi. Ég rek mitt fyrirtæki Palli Hauks ehf. og þjónusta Vesturbyggð í jarðvinnu og fl.
Áhugamál mín eru æskulýðs og íþróttamál ásamt uppbyggingu okkar frábæra samfélags. Ég var í Íþrótta og æskulýðsnefnd frá 1990 í tvö kjörtímabil og tók þátt í uppbyggingu félagsmiðstöðvar og vann þar um árabil. Einnig hef ég óbilandi áhuga á menningarstarfi hverskonar, þó einkum tónlist. Um árabil hef ég séð um tónlistarhátíðina Blús milli fjalls og fjöru ásamt félögum mínum Gesti Rafnssyni og Guðna Frey Ingvasyni í 12 ár, sem stækkar á hverju ári.
Með veru minni í heimastjórn vil ég nýta þekkingu mína og reynslu og leggja mitt á vogarskálar betra samfélags.
Sveinn Jóhann Þórðarson
Urðargötu 7, Patreksfirði
Kæru nágrannar,
Sveinn Jóhann Þórðarson heiti ég og starfa í fiski og ýmsu barnastarfi. Ég hef brennandi áhuga á því að taka þátt í starfi heimastjórnar, þá sérstaklega með það að markmiði að gera okkur að stærra og öflugra samfélagi. Ég tel að til þess þurfum við nokkra hluti til að við getum aukið þjónustu í okkar blessuðu byggð.
Okkur vantar að fá lágvöruverslun, tannlækni sem annað hvort býr hér eða kemur reglulega, fleiri og fjölbreyttari fyrirtæki svo við séum með öruggri stoðir fyrir samfélagið. Ég vil ýta á verðandi bæjarstjórn að efla tómstundastarf, þá sérstaklega fyrir 5. – 7. bekk og framhaldsskólanema sem vantar skipulagt starf og aðstöðu fyrir mikilvægt forvarnarstarf.
Kær kveðja,
Sveinn Jóhann Þórðarson.
Framboð til heimastjórnar Rauðasandshrepps og Barðastrandar
Ástþór Skúlason
Melanesi, Rauðasandi
Ágætu íbúar Barðastrandar- og Rauðasandshrepps hinna fornu.
Ég Ástþór Skúlason á Melanesi Rauðasandi hef ákveðið að bjóða fram krafta mína til setu í heimastjórn í komandi kosningum þann 4. maí næstkomandi ef fólki hugnast að veita mér gengi til.
Það geri ég af áhuga og væntumhyggju á þeirri náttúru og því samfélagi sem við búum í og mér er mikið í mun að greiða götu þess til uppbyggingar og varðveislu sem frekast er kostur. Ég hef ekki háskólagráður til að státa af en ég tel mig þó hafa ágæta þekkingu á þeirri náttúru og lífríki sem við búum í.
Í von um að sem flestir geti nýtt sér atkvæðisrétt sinn þann 4. maí.
Kærar kveðjur
Ástþór Skúlason
Edda Kristín Eiríksdóttir
Grjóthólum, Barðaströnd
Ágætu sveitungar,
Ég gef kost á mér til setu í heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps. Heimastjórnum er ætlað að tryggja áhrif og aðkomu heimafólks að þeim ákvörðunum sem teknar eru í sveitarfélaginu, ásamt því að koma málum á dagskrá bæjarstjórnar. Ef þið treystið mér til starfa þá treysti ég mér í verkefnið.
Ég er fædd á Patreksfirði 1973 og alin upp að hálfu hjá móðurforeldrum mínum í Haga. Ég er sagnfræði- og ferðamálafræðimenntuð, með leiðsögumannspróf, landvarðaréttindi og diplómu í opinberri stjórnsýslu. Um þessar mundir vinn ég að því að klára MPA nám í opinberri stjórnsýslu í HÍ.
Ég hef starfað hjá hinu opinbera frá árinu 2012, fyrst hjá Þjóðskrá Íslands sem deildarstjóri en sem svæðissérfræðingur á sunnanverðum Vestfjörðum í náttúruverndarteymi Umhverfisstofnunar frá ársbyrjun 2017. Ég tel að reynsla mín og
menntun úr stjórnsýslunni muni nýtast vel í þeim verkefnum sem heimastjórnum verða falin.
Mál sem eru mér hugleikin eru verndarsvæði og virðing fyrir gæðum náttúrunnar, samgöngubætur og þjónusta. Fyrir sveitirnar tel ég sérstaklega brýnt að vel sé búið að fjölskyldufólki þar eð grundvöllur þess að samfélög eigi sér von um sjálfbæra framtíð felst beinlínis í því að þar sé með góðu móti hægt að koma börnum á legg.
Með vinsemd
Edda Kristín Eiríksdóttir, Grjóthólum
Þórður Sveinsson
Skálholti á Krossholtum, Barðaströnd
Ég, Þórður Sveinsson Skálholti á Krossholtum á Barðaströnd, hef ákveðið að bjóða mig fram til heimastjórnar í komandi kosningum 4. maí 2024 fyrir Barðaströnd og Rauðasand.
Ég er fæddur og uppalinn á Barðaströnd. Ég hef tekið þátt í ýmsum félagsstörfum í gegnum tíðina. Ég hef alltaf haft áhuga á sveitarstjórnarmálum. Mín vinna hefur snúist um ferðaþjónustu og búskap í seinni tíð. Mér þykir vænt um sveitirnar og vill sjá þær dafna áfram í hefðbundnum búskap ásamt ferðaþjónustu og öðrum greinum atvinnulífs. Það þarf að vera gott félagslegt umhverfi fyrir unga sem aldna í sveitunum.
Ef ég fæ til þess brautargengi á laugardaginn mun ég vinna fyrir ykkur í sveitunum að þeim málum sem eru ykkur hugleikin.
Kærar kveðjur,
Þórður Sveinsson, Skálholti.
Framboð til heimastjórnar Tálknafjarðar
Jón Aron Benediktsson
Hvammi, Tálknafirði
Kæru íbúar Tálknafjarðar og nær sveita,
Jón Aron Benediktsson heiti ég og mig langar að bjóða mig fram í heimastjórn núna á komandi kjörtímabili frá og með 4. maí 2024. Ég hef starfað hjá Lás ehf., undanfarin 4 ár, og er í flestum störfum þar en þó aðalega vélavinnu og bílstjóri. Einnig starfa ég í slökkviliði Tálknafjarðar.
Ég hef búið á Tálknafirði síðan 2020 en samt verið hér á Sunnanverðum Vestfjörðum meiri hluta ævinnar. Ég er með miklar vonir um að framtíðin hér á svæðinu haldi áfram að dafna og eigi eftir að fjölga fólki þannig það verði hægt að byggja stærra og flottara samfélag.
Með bestu kveðjum
Jón Aron Benediktsson.
Jónas Snæbjörnsson
Túngötu 28, Tálknafirði
Kæru íbúar, ég heiti Jónas Snæbjörnsson og gef kost á mér í heimastjórn í Tálknafirði. Ég er fæddur 1984 og uppalinn á Tálknafirði, Ég bjó í Reykjavík í 10 ár og flutti síðan aftur heim á Tálknafjörð árið 2014 ásamt eiginkonu minni, Heather Sosbee og börnunum okkar tveimur, Noah Þráinn og Willow Þóru. Síðan þá hef ég starfað hjá Arnarlax. Áhugamálin mín eru útivist, tónlist og ýmskonar menning. Ég er menntaður sem hljóðtæknir frá Tækniskólanum (Diploma) og sem fiskeldisfræðingur frá Háskólanum á Hólum (Diploma).
Á núverandi kjörtímabili í Tálknafirði hef ég setið í Umhverfis- og byggingarnefnd og Fræðslunefnd ásamt því að vera varamaður í sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps. Ég er formaður hollvinafélags pollsins í Tálknafirði “Pollvina” og er í stjórn Skógræktarfélags Tálknafjarðar. Einnig hef ég tekið að mér að vera plötusnúður á dansleikjum og skemmtunum á svæðinu.
Ég hef áhuga á umhverfismálum, auknu framboði á afþreyingu, útiveru og fjölbreyttri menningu fyrir heimamenn jafnt sem ferðamenn. Ég hef mikinn metnað í að leggja mitt af mörkum fyrir bættu samfélagi í nýju sveitarfélagi og því spennandi verkefni að þróa nýja heimastjórn í Tálknafirði með samfélagið okkar að leiðarljósi.
Trausti Jón Þór Gíslaon
Túngötu 39, 460 Tálknafirði
Kæru nágrannar
Ég gef kost á mér til að sitja fyrir ykkur í heimastjórn Tálknafjarðar.
Alveg síðan ég flutti hingað 2020 hef ég haft puttan á púlsinum hvað varðar okkar samfélag og mikinn áhuga á að leggja mitt að mörkum. Ég er í slökkvuliðinu, skógræktinni og formaður Björgunarsveitarinnar Tálkna. Ég starfa hjá Allt í Járnum.
Ég vill halda Tálknafirði aðlaðandi kost fyrir komandi kynslóðir.
Kærar kveðjur
Trausti Jón Þór Gíslason
Þór Magnússon
Móatúni 17, Tálknafirði
Ég Þór Magnússon, Móatúni 17 460 Tálknafirði, gef kost á mér til heimastjórnar Tálknafjarðar.
Ég er borinn og barnfæddur Tálknfirðingur og ber miklar taugar til staðarins og ber hag hans fyrir brjósti.
Ég er menntaður skipstjóri og vélstjóri og hef unnið mest megnis við það. Þær áherslur sem ég legg á er að við nýtum náttúruauðlindir okkar vel, nær samfélaginu til heilla bæði til sjós og lands. Atvinnumál skipta mig líka miklu máli, einnig fegrun staðarins og að það sér fjölskylduvænt að búa hér. Mun ég leggja mig fram um þessi mál ef ég verð kosinn.
Nýtum kosningaréttinn.
Með bestu kveðju, Þór Magnússon.