Atburðir

Verkefni með styrk frá Ferðamálastofu kynnt

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Á súpufundinum í dag, fimmtudaginn 4. mars, verða kynnt í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði þau verkefni sem fengu styrki frá Ferðamálastofu vegna uppbyggingar og úrbóta á ferðamannastöðum á suðursvæði Vestfjarða.

Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr.

Súpufundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.

Þjóðaratkvæðagreiðsla

Laugardaginn 6. mars 2010 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um gildi laga nr. 1/2010.

 

Kjörfundir verða haldnir í eftirfarandi þremur kjördeildum í Vesturbyggð:

 

  • Á Patreksfirði í framhaldsskóladeild FSN sem er í þekkingarsetrinu SKOR (Grunnskóla Patreksfjarðar).
    Kjördeildin verður opin frá kl. 10:00 - 18:00. ATH. BREYTTAN KJÖRSTAÐ.
  • Á Bíldudal; í félagsheimilinu Baldurshaga. Kjördeildin verður opin frá kl. 12:00 - 18:00.
  • Á Krossholtum: í Birkimelsskóla. Kjördeildin verður opin frá kl. 12:00 - 18:00.
Íbúar fyrrum Rauðasanndshrepps eru skráðir í kjördeildinni á Patreksfirði.

 

Patreksfirði 26. febrúar 2010.

Bæjarstjórinn í Vesturbyggð.

Umhverfismál Snæfellsbæjar kynnt

Þórunn Sigþórsdóttir, umhverfisfulltrúi Snæfellsbæjar, kynnir umhverfismál í Snæfellsbæ á súpufundi í dag.

 

Fundurinn er haldinn í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr. og fundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.

Borgarafundur til stuðnings uppbyggingar á Vestfjarðavegi

Almennur borgarafundur verður á Patreksfirði laugardaginn 13. mars í Félagsheimili Patreksfjarðar frá kl. 14-16 til stuðnings uppbyggingar á Vestfjarðavegi um Barðastrandarsýslu og með Dýrafjarðargöngum.

 

Með Vestfjarðavegi verða tengdar saman byggðir á Vestfjörðum og þær tengdar við aðalþjóðvegakerfi landsins með góðum heilsárs vegi.

 

Að fundinum standa einstaklingar búsettir á Vestfjörðum sem vilja öfluga byggð í fjórðungnum öllum og kalla sig aðgerðahópinn áfram vestur.

 

Dagskrá:

1. Umhverfismat fyrir Dýrafjarðargöng, Þorleifur Eiríksson, Náttúrurstofu Vestfjarða.
2. Störf nefndar sem skoðar möguleika á nýjum vetrarfærum vegi yfir Dynjandisheiði, Gísli Eiríksson, Vegagerð ríkisins.
3. Stutt ávörp: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Eggert Stefánsson, Páll Líndal Jensson, Smári Haraldsson, Guðrún Eggertsdóttir, Sigurður Jón Hreinsson, Halldór Halldórsson.
4. Almennar umræður.

Patreksdagurinn

Patreksdagurinn 2010
Patreksdagurinn 2010
Patreksdagurinn er upplagður dagur til að halda hátíð í bæ og standa saman að fagnaðarhöldum eins og verið hefur.

 

Samkvæmt Landnámu var fyrsti landnámsmaður í Patreksfirði Örlygur Hrappsson sem steig á land í firðinum sunnanverðum ásamt mönnum sínum. Þar heitir síðan Örlygshöfn. Nefndi hann fjörðinn eftir fóstra sínum, Patreki biskupi í Suðureyjum.

 

Árshátíð fyrirtækja og stofnana

Árshátíð fyrirtækja og stofnana í Vesturbyggð fer fram þann 27. mars 2010.
Atburðadagatal
« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir
Héðan og þaðan
Skolastarfsemi
  • Stutt í vinnu og skóla.
  • Skrímsli í hverjum firði

  • Fjölbreytt menningar- og tónlistarlíf
  • Glæsilegar íþróttamiðstöðvar
  • Skoða staðreyndir nánar
Vefdagbækur