Verkefni með styrk frá Ferðamálastofu kynnt
Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr.
Súpufundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
4. mars - Klukkan?
12:30 til 13:00
Þjóðaratkvæðagreiðsla
Kjörfundir verða haldnir í eftirfarandi þremur kjördeildum í Vesturbyggð:
- Á Patreksfirði í framhaldsskóladeild FSN sem er í þekkingarsetrinu SKOR (Grunnskóla Patreksfjarðar).
Kjördeildin verður opin frá kl. 10:00 - 18:00. ATH. BREYTTAN KJÖRSTAÐ. - Á Bíldudal; í félagsheimilinu Baldurshaga. Kjördeildin verður opin frá kl. 12:00 - 18:00.
- Á Krossholtum: í Birkimelsskóla. Kjördeildin verður opin frá kl. 12:00 - 18:00.
Patreksfirði 26. febrúar 2010.
Bæjarstjórinn í Vesturbyggð.
- Hvar?
-- - Hvenær?
6. mars - Klukkan?
10:00 til 18:00
Umhverfismál Snæfellsbæjar kynnt
Fundurinn er haldinn í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr. og fundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.
- Hvar?
-- - Hvenær?
11. mars - Klukkan?
12:30 til 13:00
Borgarafundur til stuðnings uppbyggingar á Vestfjarðavegi
Með Vestfjarðavegi verða tengdar saman byggðir á Vestfjörðum og þær tengdar við aðalþjóðvegakerfi landsins með góðum heilsárs vegi.
Að fundinum standa einstaklingar búsettir á Vestfjörðum sem vilja öfluga byggð í fjórðungnum öllum og kalla sig aðgerðahópinn áfram vestur.
Dagskrá:
1. Umhverfismat fyrir Dýrafjarðargöng, Þorleifur Eiríksson, Náttúrurstofu Vestfjarða.
2. Störf nefndar sem skoðar möguleika á nýjum vetrarfærum vegi yfir Dynjandisheiði, Gísli Eiríksson, Vegagerð ríkisins.
3. Stutt ávörp: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Eggert Stefánsson, Páll Líndal Jensson, Smári Haraldsson, Guðrún Eggertsdóttir, Sigurður Jón Hreinsson, Halldór Halldórsson.
4. Almennar umræður.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
13. mars - Klukkan?
14:00 til 16:00
Patreksdagurinn
Samkvæmt Landnámu var fyrsti landnámsmaður í Patreksfirði Örlygur Hrappsson sem steig á land í firðinum sunnanverðum ásamt mönnum sínum. Þar heitir síðan Örlygshöfn. Nefndi hann fjörðinn eftir fóstra sínum, Patreki biskupi í Suðureyjum.
- Dagskrá Patreksdagsins 2010 (PDF 472 KB)
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
17. mars - Klukkan?
00:00 til 00:00
Menningarráð Vestfjarða kynnt
Fundurinn verður haldinn í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr.
Fundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
18. mars - Klukkan?
12:30 til 12:30
216. fundur bæjarstjórnar
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar
1. 1002010F - Bæjarráð - 556
2. 1003001F - Bæjarráð - 557
3. 1003002F - Bæjarráð - 558
4. 1003008F - Bæjarráð - 559
5. 1003009F - Bæjarráð - 560
6. 1003011F - Bæjarráð - 561
7. 1003005F - Skipulags- og byggingarnefnd - 136
8. 1002011F - Hafnarstjórn - 113
9. 1003012F - Félagsmálanefnd - 104
Almenn erindi
10. 1003072 - Reglur um félagslegar leiguíbúðir Vesturbyggðar
11. 1002080 - Skipulagsstofnun beiðni um umsögn vegna Fjarðarlax ehf.
12. 1002075 - Bókun frá Jóni Hákoni Ágústssyni
Til kynningar
13. 1003068 - Undirskriftarlisti - Arnarfjörður fyrir íbúa fjarðarins
Guðný Sigurðardóttir, skrifstofustjóri.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
23. mars - Klukkan?
17:00 til 17:00
Óvissa í sjávarútvegi!
Fundarboðendur eru sveitarfélög og hagsmunasamtök til lands og sjávar á Vestfjörðum sem sameinast í andstöðu við fyrningarleið í sjávarútvegi, afnám sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni.
Bein vefútsending verður frá fundinum á heimasíðunni www.bb.is.
Fundurinn á Ísafirði er hliðstæður fundum sem sveitarfélög og hagsmunasamtök hafa efnt til undanfarið í Ólafsvík, á Eskifirði og í Vestmannaeyjum. Í undirbúningi eru fleiri slíkir fundir, meðal annars við Eyjafjörð og á Suðurnesjum.
- Hvar?
Ísafjörður - Hvenær?
24. mars - Klukkan?
20:00 til 20:00
Fyrirtækið Íslenskur kræklingur kynnt
Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr. og fundurinn hefst eins og áður kl. 12.30 á Hópinu í Tálknafirði.
- Hvar?
Tálknafjörður - Hvenær?
25. mars - Klukkan?
12:30 til 13:00
Árshátíð fyrirtækja og stofnana
Húsið opnar kl. 19.30 og skemmtunin hefst kl 20.00.
Veislustjóri verður Karl Örvarsson, og stuðbandið Glymskrattinn mun sjá til þess að árshátíðargestir skemmti sér vel á ballinu. Vínveitingar verða á árshátíðinni og er 18 ára aldurstakmark.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
27. mars - Klukkan?
19:30 til 19:30
