55. Fjórðungsþing Vestfirðinga
Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða verður haldinn á Hólmavík strax í framhaldi af fjórðungsþinginu.
- Hvar?
Hólmavík - Hvenær?
3. september - Klukkan?
10:00
Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða
Fundurinn verður haldinn á Hólmavík og hefst kl. 15:00, en nánari staðsetning verður kynnt síðar. Samkvæmt samþykktum Menningarráðsins velja sveitarstjórnir á starfssvæðinu fulltrúa á aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða og fara þeir með umboð viðkomandi sveitarstjórnar í samræmi við íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags þann 1. desember árið áður.
Á aðalfundi skal taka fyrir eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.
- Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda ef einhverjar eru.
- Kosin stjórn og varastjórn, og tveir skoðunarmenn reikninga. Skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna ráðsins.
- Ráðsstjórn leggur fram tillögur að fjárhagsáætlun næsta árs og breytingar á framlögum skv. samningi við ríkið.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Önnur mál.
Á aðalfundinum verða að þessu sinni einnig teknar fyrir breytingar á samþykktum Menningarráðsins
- Hvar?
-- - Hvenær?
4. september - Klukkan?
15:00
Göngum saman á Patró
Í ár verður gengið á sex stöðum utan Reykjavíkur, þ.e. á Patreksfirði, Ísafirði, Hólum í Hjaltadal, Akureyri, Reyðarfirði og Höfn.
Göngugjald fyrir fullorðna er kr. 3.000 og rennur það óskipt í styrktarstjóð Göngum saman. Frítt verður fyrir börn.
Skráning í gönguna er hafin hér á vef Göngum saman en einnig verður hægt að skrá sig á göngustöðunum.
Gengið verður frá íþróttahúsinu Bröttuhlíð upp í Mikladal og til baka, 3 km, 5 km eða 7 km. Að lokinni göngu fá göngugarpar frítt í sundlaugina.
Helsti tilgangur félagsins Göngum saman er að safna fé til grunnrannsókna á krabbameini í brjóstum.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
5. september - Klukkan?
11:00
Foreldrafundur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Skólameistari, Jón Eggert Bragason, boðar foreldra og forráðmenn nemenda Fjölbrautaskóla Snæfellinga á foreldrafund fimmtudaginn 9. september 2010 kl. 20.00 í matsal skólans. Foreldrar og forráðamenn nemenda sem sækja nám í framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta í húsnæði deildarinnar á Patreksfirði.
Dagskrá:
- Ávarp skólameistara
- Kynning á áfangakerfi, stundatöflu, stoðþjónustu og skólareglum
- Kynning á INNU - upplýsingakerfi skóla, Moodle - kennslukerfi FSN
- Kynning á NFSN - nemendafélagi og félagslífi
- Kynning á foreldrafélagi
- Umræður og önnur mál
- Umsjónarkennarar hitta foreldra
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
9. september - Klukkan?
20:00
Tólf spora starf
Fundurinn er öllum opin og reiknað er með að hann standi í tvær klukkustundir.
Fyrsti fundur verður haldinn í beinu framhaldi laugardaginn 11. september frá kl. 10-14. Fyrsti fundur er opinn öllum en hópum verður síðan lokað á fjórða fundi.
Í tólf spora starfi felst tækifæri til að skoða líf sitt, tala, hlusta, þroskast og öðlast meiri færni í að takast á við sjálfan sig og lífið.
Besta leiðin til að kynnast þessu frábæra ferðalagi er að mæta í Tálknafjarðarkirkju, en einnig má fá frekari upplýsingar á viniribata.is eða hringja í sr. Ástu I. Pétursdóttur, sóknarprest, í síma 861 3604.
Á viniribata.is má lista yfir algeng hegðunarmynstur þar sem tólf sporin geta hjálpað.
- Hvar?
Tálknafjörður - Hvenær?
10. september - Klukkan?
20:00
Ertu heili eða hálfviti?
Í fyrra voru gleðikvöldin í formi söng- og spurningakeppni en að þessu sinni verður eingöngu um spurningakeppni að ræða.
Fyrsta kvöldið verður haldið föstudaginn 24. september næstkomandi í Félagsheimili Patreksfjarðar og næstu kvöld verða 15. október, 5. nóvember og 3. desember. Húsið opnar kl. 20.30 og hefst keppni stundvíslega kl. 21.00.
Lágmarksaldur keppenda er 16 ár en yngri en 18 ára verða þó að vera í fylgd með foreldri. Hver keppandi getur einungis keppt fyrir eitt lið.
Tekið er við skráningu í síma 8666822 eða hjá Fanneyju Sif. Skráning má ekki berast seinna en miðvikudaginn 15. september 2010.
Hver hópur verður að skipa þrjá keppendur. Spurt verður í nokkrum flokkum; hraðaspurningar, bjölluspurningar, vísbendingaspurningar, leikræn tilbrigði og hjólið (þar sem hjóli er snúið og liðsmaður þarf að leysa verkefni af hendi).
Leikfélagið hvetur hópa til þess að skrá sig og taka þátt.
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
24. september - Klukkan?
21:00
Flugslysasæfing
Á æfingunni verður líkt eftir flugslysi og brugðist við í samræmi við viðbragðsáætlun fyrir flugvöllinn.
Tilgangur æfingarinnar er að fylgja viðbragðsáætlun fyrir flugvöllinn í samvinnu allra viðbragðsaðila á svæðinu, þ.e. slökkviliða, lögreglu, björgunarsveita, Rauða krossins, heilbrigðisstofnunarinnar og flugvallarstarfsmanna.
Isavia, sem annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi, og heimamenn bera hitann og þungann af undirbúningi æfingarinnar. Einnig koma fjölmargir aðrir að undirbúningnum eins og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landspítali háskólasjúkrahús, Landhelgisgæslan, Neyðarlínan, Rannsóknarnefnd flugslysa, Rauði krossinn, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjórans, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Þjóðkirkjan og Slökkvilið Akureyrar.
Ekki þarf að fjölyrða um þá gífurlegu vinnu sem liggur í undirbúningi og framkvæmd æfingar sem þessarar. Á annað hundrað einstaklingar koma að æfingunni, allir með mikla þekkingu og reynslu, sem gera má ráð fyrir að verði nýtt til hins ítrasta.
Meginþungi æfingarinnar liggur á herðum heimamanna enda er markmið æfingarinnar að samhæfa viðbrögð allra hlutaðeigandi aðila á svæðinu.
Til þess að æfing sem þessi geti gengið upp og allir fái sem mest út úr henni þarf þolendur (sjúklinga). Án þeirra yrði æfingin heldur daufleg og ekki miklar áskoranir að fá fyrir viðbragðsaðila. Vegna þess er leitað að fólki sem er tilbúið að gerast leikarar á æfingunni og leika farþega og áhöfn flugvélarinnar.
Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til við þetta verkefni eru beðnir að setja sig í samband við Maríu Ragnarsdóttur í síma 845 1224.
- Hvar?
Bíldudalur - Hvenær?
25. september - Klukkan?
09:00
Jón Kr. Ólafsson - 70 ára afmælistónleikar
Fjöldi landsfrægra tónlistarmanna og kóra heiðra Jón Kr. með nærveru sinni.
Fram koma: Gissur Páll Gissurarson, Anna Sigríður Helgadóttir, Fjallabræður, Þuríður Sigurðardóttir, Jóhanna Linnet, Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur ásamt Jóhönnu Þórhalls og Aðalheiði Þorsteinsdóttur, Kristín Sædal, Kristján Gíslason og Raggi Bjarna. Sérstakur heiðursgestur á tónleikunum verður stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson. Ávörp flytja Pétur Bjarnason og Jónatan Garðarsson.
Hljómsveitin Spútnik leikur undir en hana skipa Pétur Valgarð Pétursson, gítar,Kristinn Kristjánsson bassi, Kristinn Einarsson hljómborð, Ingólfur Sigurðsson trommur, Auk hljómsveitarinnar koma fram tónlistarmennirnir Birgir Jóhann Birgisson á hljómborð, Óskar Guðjónsson á saxófón, Gréta Salóme Stefánsdóttir á fiðlu, Gunnar Hrafnsson á bassa og Jósep Blöndal á píanó.
Kynnar kvöldsins verða söngvararnir Gísli Ægir Ágústsson og Bjarni Þór Sigurðsson.
FÍH salurinn er að Rauðagerði 27 í Reykjavík og tónleikarnarnir hefjast stundvíslega kl. 20:30. Veitingasala í hléi. Miðaverð er 2.000 krónur og eru miðarnir eingöngu seldir við innganginn. Tekið er við kortum.
Af gefnu tilefni þá vill afmælisbarnið taka það fram að hann frábiður sér allar gjafir.
- Hvar?
Reykjavík - Hvenær?
25. september - Klukkan?
20:30
Hundahreinsun og dýralæknir
Hundaeigendur greiða sjálfir fyrir bólusetninguna en hreinsunin er innifalin í hundaleyfisgjaldi.
Ef dýraeigendur þurfa á aðstoð dýralæknis að halda þá eru þeir vinsamlega beðnir að hringja í Sigríði dýralækni áður en hún kemur á svæðið. Símatími hjá henni er milli kl 09:00 og 10:00 alla virka daga í síma 456-3350, neyðarsími 861-4568 eða senda tölvupóst á sisvet@snerpa.is.
Hundaeigendur sem vantar merki á hundana sína eru beðnir að láta vita af því við hundahreinsunina eða senda tölvupóst á ba@vesturbyggd.is þar sem er tilgreint nafnið á hundinum og símanúmerin sem eiga að vera á merkinu (mega vera tvö símanúmer).
- Hvar?
Patreksfjörður - Hvenær?
28. september - Klukkan?
15:00

