Sjóræningjahúsið

Sjóræningjahúsið er staðsett í gamalli smiðju við sjóinn á Vatneyri, Patreksfirði. Þar er að finna fyrsta hluta sýningar um sjórán við Vestfirði, kaffihús, minjagripaverslun og skiptibókamarkað.

Í húsinu er búið að gera upp gamla eldsmiðjusalinn og eldstæðið sjálft sem þar er. Eldsmiðjan er nýtt sem uppákomusalur þar sem haldnir eru tónleikar og staðið fyrir ýmsum öðrum menningarviðburðum, þar er einnig boðið upp á mat fyrir hópa. Í eldsmiðjunni er hægt að koma 60 manns í sæti og hún er leigð út sem samkomusalur.

Til 3. ágúst er opið frá klukkan 10-22 alla daga vikunnar.
Frá 4. - 31. ágúst er opið frá klukkan 10-18 alla daga vikunnar.

 

Sjóræningjahúsið
Vatneyri, 450 Patreksfirði
s. 456-1133
www.sjoraeningjahusid.is

Atburðadagatal
« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir