Sumarmarkaður Vestfjarða

Sumarmarkaður Vestfjarða verður haldinn alla laugardaga í sumar. Markaðurinn er í Pakkhúsinu á Patreksfirði og opnunartími er á laugardögum frá 13-16.

Vestfirðingar og allir landsmenn eru hvattir til að leggja leið sína á sumarmarkaðinn á laugardögum í sumar. Á sumarmarkaðnum er reynt að skapa skemmtilega markaðsstemmningu í bland við uppákomur, leiki, tónlist og fjör. Hér gefst öllum Vestfirðingum nær og fjær tækifæri til að koma handverki, heimagerðum vörum eða hreinlega kompudótinu á framfæri og selja þær fyrir ferðamenn og heimamenn. Uppákomur á markaðnum verða auglýstar sérstaklega en verða haldnar kl.15.

 

Básar til leigu: Þeir sem hafa áhuga á að selja vörur geta leigt bás gegn vægu verði; 1.500 kr. Einnig er hægt að fá aðgang að rafmagni t.d. fyrir kæli- eða frystiskáp og kostar það 1.500 krónur aukalega. Reikningsnúmer markaðarins er 1118-05-1084, kt. 510694-2369.

 

Hafið samband við eftirfarandi aðila til að leigja bás:

  • Magnús Ólafs Hanson s: 4902301
  • Guðrún Eggertsdóttir s: 843-0580
  • María Ragnarsdóttir s: 4905095.

Atburðadagatal
« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir
Héðan og þaðan