Veður
Bíldudalsflugvöllur, Bíldudalur,
Bjargtangar,
Breiðafjörður, Klettsháls,
Patreksfjörður, sjóveðurspá, sólargangur, Tálknafjörður.
Færð á vegum
Færð
og veður, Hálfdán, Kleifaheiði, Klettsháls, Miklidalur.
Vegalendir
Frá: Bíldudal, Bjargtöngum, Brjánslæk, Hrafnseyri, Patreksfirði, Selárdal, Tálknafirði
Flug
Ernir, Keflavíkurflugvöllur, Reykjavíkurflugvöllur.
Jarðskjálftar og hafís
Jarðskjálftar og hafís.
Ályktun bæjarstjórnar um embætti sýslumannsins á Patreksfirði
Bæjarstjórn Vesturbyggðar lagði fram ályktun um embætti sýslumannsins á Patreksfirði á síðasta fundi sínum.
Ályktunin hljóðar svo:
Bæjarstjórn Vesturbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar ráðstöfunar dómsmála- og mannréttindaráðherra að fela Sýslumanninum á Patreksfirði að sinna tímabundið til eins árs að auki embættið á Ísafirði með aðalbækistöðvar þar. Nokkuð ljóst má vera að sú tilhögun sem nú er gerð sé fyrsta skrefið í átt að því að leggja endanlega niður embætti Sýslumanns á Patreksfirði.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar vill vekja athygli á því að með þessari tilhögun er enn og aftur vegið að opinberum störfum á landsbyggðinni með tilheyrandi áhrifum á skatttekjur og samfélagsgerð í smærri samfélögum líkt og Vesturbyggð. Umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði, þ.e. Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur er mjög einangrað svæði einkum við Ísafjarðarsvæðið. Samgöngur á milli þessara svæða liggja niðri hluta úr ári og engar skipulagðar ferðir eru þarna á milli, hvorki bílferðir né flugferðir. Því er nauðsynlegt að í Vesturbyggð verði starfsstöð með eins góðri þjónustu og kostur er og að þar starfi lögfræðingur.
Einnig vill bæjarstjórn Vesturbyggðar leggja á það áherslu að hugað sé að því að úthluta sérstökum verkefnum til embættis Sýslumannsins á Patreksfirði, eins og til stóð líkt og gert hefur verið víða um land hjá smærri embættum og öllum embættum á Vestfjörðum nema Patreksfirði. Bæjarstjórn Vesturbyggðar er reiðubúin til viðræðna við dómsmála- og mannréttindaráðherra um framtíðarhlutverk og styrkingu embættisins á Patreksfirði.