Lúðrasveitarheimsókn í Vesturbyggð

Lúðrasveit
Lúðrasveit
Tónlistarskóli Vesturbyggðar tekur á móti lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness um komandi helgi.

Gestirnir koma á Patreksfjörð síðla föstudags og verða fram á sunnudag. Á laugardagsmorgun kl. 9 hefjast æfingar lúðrasveitarinnar og er öllum á suðursvæði Vestfjarða sem kunna á blásturshljóðfæri boðið að taka þátt í þeim. Jafnvel gefst þeim líka kostur á því að taka þátt í tónleikum sveitarinnar. Æft verður í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði.

 

Á sunnudaginn býður lúðrasveitin öllum sem áhuga hafa á tónleika í Skjaldborgarbíói. Frítt er inn á tónleikana sem hefjast stundvíslega kl. 12.30.

 

Þessi heimsókn er liður í vinaskólasambandi skólanna tveggja. Um þrjátíu manns koma vestur í þessa heimsókn.

Skrifaðu athugasemd:












Til baka
Atburðadagatal
« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir