Veður
Bíldudalsflugvöllur, Bíldudalur,
Bjargtangar,
Breiðafjörður, Klettsháls,
Patreksfjörður, sjóveðurspá, sólargangur, Tálknafjörður.
Færð á vegum
Færð
og veður, Hálfdán, Kleifaheiði, Klettsháls, Miklidalur.
Vegalendir
Frá: Bíldudal, Bjargtöngum, Brjánslæk, Hrafnseyri, Patreksfirði, Selárdal, Tálknafirði
Flug
Ernir, Keflavíkurflugvöllur, Reykjavíkurflugvöllur.
Jarðskjálftar og hafís
Jarðskjálftar og hafís.
Ályktun velferðarvaktarinnar í upphafi skólastarfs 2010
Höfundur: Velferðarvaktin
Á fundi velferðarvaktarinnar, 24. ágúst síðastliðinn, var samþykkt að beina því til sveitarstjórna og skólanefnda að huga sérstaklega að líðan barna í upphafi skólaárs.
Mikilvægt er að kostnaði við kaup á skólavörum og þátttöku í frístundastarfi sé haldið í lágmarki og tryggt að kostnaður heimilanna vegna skólastarfs hindri í engu þátttöku barna í leik og starfi.
Mikilvægt er að kostnaði við kaup á skólavörum og þátttöku í frístundastarfi sé haldið í lágmarki og tryggt að kostnaður heimilanna vegna skólastarfs hindri í engu þátttöku barna í leik og starfi.
Velferðarvaktin hefur miklar áhyggjur af biðlistum barna á frístundaheimilin og hvetur sveitarstjórnir og skólanefndir til að leita allra leiða til að laða að hæft starfsfólk til að tryggja þessa mikilvægu starfsemi.
Að lokum leggur velferðarvaktin áfram áherslu á, sbr. bréf vaktarinnar til sveitarstjórna 15. september 2009, að tryggt verði með öllum tiltækum ráðum og fylgst með að börn í skólum á þeirra vegum fái hádegisverð alla skóladaga.
- Nánari upplýsingar um velferðarvaktina er að finna á heimasíðu vaktarinnar.

