Bréf til bæjarstjóra Vesturbyggðar

Höfundur: Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson
Sæl Ásthildur! Ég sé að þú sem bæjarstjóri Vesturbyggðar skrifar undir áróðursplagg Elliða Vignissonar bæjarstjóra Vestmannaeyjarbæjar með samningaleiðinni.

Ég vona að þessi afstaða endurspegli ekki vilja bæjarstjórnar. Í greininni segir að þú sért að tala fyrir hönd Patreksfjarðar og Bíldudals. Ég hef hvergi séð þetta samþykkt í fundargerðum hjá sveitafélaginu þar sem þér er þetta heimilað, hefur þetta verið rætt á fundum? Ég ætla bara að segja að þú hefur ekki minn stuðning þarna sem íbúi Vesturbyggðar.

 

Þetta eru mikil vonbrigði fyrir mig sem íbúa Bíldudals að sjá að bæjarstjórinn minn taki svona afstöðu gegn sínu eigin byggðalagi, ég bara veit ekki hvað þú hefur verið að hugsa, ég vona bara það hafi verið eins og hjá fleirum, þú hefur bara viljað vera með og hafir ekki lesið hvað fellst í samningaleiðinni.

 

Nú langar mig að spyrja þig Ásthildur, hvort þú sem bæjarstjóri í sveitafélagi sem hefur farið mjög halloka í núverandi kerfi, viljir múlbinda nýtingarréttinn ákveðnum aðilum þannig að það verið aldrei möguleiki fyrir staði eins og Vesturbyggð og sérstaklega Bíldudal. Með því að afhenda núverandi handhöfum nýtingarréttinn til kannski 65 ára ert þú að útiloka alla nýliðun í greininni nema vera fæddur/fædd með silfurskeið í munninum. Ég veit ekki hvort þú gerir þér grein fyrir alvarleika málsins þetta snýst ekki um daginn í dag eða morgundaginn heldur um framtíðina. Gerir þú þér grein fyrir því að 65 ár er mikið meira en ein sjómannsævi.

 

Að fara samningaleiðina er bara verið að ræna börnin okkar þeirri framtíð að geta búið á stað eins og Bíldudal. Hugsar þú þér að um leið og þetta verður samþykkt mun nýtingarrétturinn bara hækka í verði og jafnvel fara í sama verð eins og var fyrir hrun, það er bara verið að búa til falska eign sem á papír verður eign þjóðar en nýtingarrétturinn verður í höndum útvalinna og við munum ekkert um það að segja og það til framtíðar. Ég hélt að við sem þjóð værum löngu komnir með upp í kok af þannig gjörningum.

 

Við höfum barist við það í gegnum söguna að vera sjálfstæð, vera engum háð en að vera fylgjandi því að hverfa aftur til fortíðar þar sem við verðum löglega gerð að leiguliðum útvaldra hugnast mér ekki.

 

Svo að lokum ekki veit ég hvað átt er við að taka mark á strigakjöftum eru þið þá að tala um Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóra Samherja, eða eru allir túlkaðir strigakjaftar sem eru ekki sammála Elliða.


Virðingarfyllst.

Jón Páll Jakobsson

 

Skrifaðu athugasemd:












Til baka
Atburðadagatal
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir