Dæmið ekki ...

Höfundur: Magnús Ólafs Hansson
Magnús Ólafs Hansson
Magnús Ólafs Hansson
Jenis av Rana, formaður Miðjuflokksins í Færeyjum og þingmaður á færeyska Lögþinginu, hefur dæmt og á því á hættu að vera dæmdur. Hann er með fordóma í garð samkynhneigðra. Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.


Óeigingjörn umhyggja fyrir velferð annarra er sjaldséð nú á tímum. Að vísu höfum við öll meðfæddan hæfileika til að sýna öðrum kærleika. En þegar sumir menn komast að raun um að aðrir reyna að notfæra sér þá á ósanngjarnan hátt, eða viðleitni þeirra til að sýna kærleika er misskilinn, kunna þeir að álykta sem svo að farsælast sé að sjá einungis um sjálfan sig.


Aðrir taka eftir að þeir sem arðræna náunga sinn komast oft til mikilla efna, fá e.t.v. þá hugmynd að þar sé kominn leiðin til að komast áfram í lífinu. Afleiðingin er sú að flestir eiga mjög fáa sanna vini, ef þá nokkra.


Andi vantrausts og tortryggni verður ríkjandi. Hvað skyldi valda þessu óhamingjusama og gleðisnauða ástandi? Spyrji nú hver sig.


Að mínu mati er það skortur á kærleika. Kærleika sem kemur fram í einlægum áhuga á varanlegri velferð annarra manna. Og hvers vegna skortir hann?


Ekki verður því neitað að til eru menn sem eilíflega eru að þykjast, sem játa trú á Guð og sækja jafnvel kirkju. En sú staðreynd stendur að þeir þekkja ekki í raun og veru Guð. Að „þekkja" Guð merkir að vera vel kunnugur persónuleika hans, viðurkenna yfirráð hans og hegða sér síðan í samræmi við það.


Til þess að öðlast sanna gleði í lífinu, en það er því aðeins mögulegt að menn sýni af sér kærleika og njóti þess sama frá þeim, verðum við að kynnast Guði og heimfæra það sem við lærum um hann á líf okkar.


Í því birtist kærleikur Guðs meðal okkar, að Guð hefir sent sinn eingetna son í heiminn til þess að við skyldum lifa fyrir hann, skrifaði Jóhannes postuli. Og í Jóhannesarbréfi stendur m.a.: „Í þessu er kærleikurinn : ekki að vér elskuðum fyrst son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar. Þér elskaðir, fyrst Guð hefir svo elskað oss, þá ber einnig oss að elska hver annan."


Guð sýndi mannkyninu ekki sinnuleysi með því að láta kærleikslausa hegðun þess bæla niður sinn eiginn kærleika. Í Rómverjabréfinu segir: ,,Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn vorum í syndum vorum."


Kærleiksverk ber ekki að einskorða við einkavini sína. Kristur dó fyrir mannkynið í heild en ekki aðeins þá sem höfðu gerst lærisveinar hans meðan hann starfaði hér á jörð.


Því miður er það svo að við lifum mitt í kærleikssnauðum heimi. Við gerum okkur e.t.v. ljóst að við höfum ekki alltaf sýnt samferðamönnum okkar þá tillitssemi sem við hefðum getað.


Hjá okkur er svo mikið að gera að við megum ekki undir neinum kringumstæðum veita samferðamanninum áheyrn, eða sýna honum verðskuldaða tillitssemi, fyrr en um seinan. Getur það verið þannig?


Umhyggja okkar fyrir öðrum ætti að sjálfsögðu ekki að takmarkast við stundlegar líkamlegar þarfir þeirra. Kærleikur okkar væri ekki heldur algjör aðeins vegna þess að við sýndum góðvild í samskiptum okkar við fólk af öllum kynþáttum, þjóðernum, stéttum og kynhneigð.


Fyrir nokkrum árum sagði maður við annan mann. „Þessa konu get ég ekki kosið, hún er lesbía."


Sá sem býr yfir raunverulegum kærleika lætur ekki samkynhneigð, hörundslit, þjóðerni eða þjóðfélagsstöðu hafa áhrif á viðhorf sitt til þeirra. Vonandi hefur sá hinn sami leitað sér hjálpar á æðri stöðum gagnvart skoðunum sínum. Fyrir mér eiga allir sama rétt til lífsins.


Viðleitni til að hjálpa öðrum að njóta gagns af kærleiksríkum ráðstöfunum Krists ætti samt sem áður ekki að beinast einungis að þeim sem eru utan fjölskyldunnar. Hver heimilisfaðir t.d. ber fyrst og fremst ábyrgð gagnvart sínu heimilisfólki. Andlegur vöxtur þeirra stendur í beinu hlutfalli við það hversu reglulega hann sér um að fjölskyldan komi saman til að ræða um almáttugan Guð. Og þegar bænir föðurins á vegum fjölskyldunnar sýna djúpstætt trúnaðartraust og þakklæti getur það mótað viðhorf alls heimilisfólksins. Það er einnig í hans verkahring að veita börnum sínum aga ásamt móðurinni.


Þegar upp koma vandamál kann að virðast auðveldara að líta fram hjá þeim.


Sá samferðamaður er sannanlega kærleiksríkur sem lætur ekki undir höfuð leggjast að veita aga jafnvel þótt hann sé þreyttur að loknum vinnudegi. Það sýnir enn fremur kærleika hans ef hann með þolinmæði útskýrir hlutina fyrir börnum sínum og tekur tillit til þess að hvert og eitt þeirra hefur sínar andlegu, tilfinningalegu og líkamlegu takmarkanir.


Eiginkonan leggur sama skerf til heilla fjölskyldunni þegar hún í samráði við mann sinn tekur þátt í að sinna andlegum málefnum hennar.


Ef við temjum okkur óeigingjarna umhyggju fyrir öðrum munu aðrir sýna okkur kærleika.


Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins. Dæmið ekki því þér munuð dæmdir verða.


Magnús Ólafs Hansson, verkefnastjóri Patreksfirði

 


Skrifaðu athugasemd:












Til baka
Atburðadagatal
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir