Landsbyggðin er ,,freakshow," á RUV

Höfundur: Atli Fanndal, blaðamaður á smugan.is
„Landsbyggðin er freakshow eins og hún birtist á RUV. Þau fáu skipti sem kastljósinu er beint að fólki utan höfuðborgarsvæðisins er það gert í einkennilegu ljósi. Fjallað er um fjöldauppsagnir og náttúruhamfarir. Engin tilraun er gerð til að sýna líf og samfélag á landsbyggðinni. Ég vellti því fyrir mér hvernig er að búa í samfélagi sem er nánast ekki til í umfjöllun fjölmiðla. Landinn sem ég hef séð einn þátt af er skref í rétta átt en kemur auðvitað ekki í staðinn fyrir að Rúv skar heiftarlega niður starfsemi svæðisstöðva," segir Pétur Gunnarsson rithöfundur.

 

Ríkisútvarpið er að sögn Péturs úti á túni í mörgum mikilvægum málum. „Það er aldrei fjallað um brennandi og stór samfélagsmál á heildstæðan hátt. Kvótakerfið er gott dæmi, þau eru hæg heimatökin að fjalla um hvað er að baki kerfinu, tala við þá sem líða fyrir það og einstaklinga sem hafa auðgast á kerfinu. Rúv hefur ekkert fjallað um þetta. Það á einnig við um útrásina og stóriðjustefnu stjórnvalda. Um útrásina fengum við danska heimildamynd og um Kárahnjúkavirkjun var varla fjallað um fyrr en allt var frá gengið."

 

Skúli Helgason þingmaður Samfylkingar og formaður menntamálanefndar segir það lýsandi fyrir stöðu Ríkisútvarps að þar er ekki einn fréttaskýringaþáttur. „RUV á að vera fremst í flokki og við eigum að gera þá kröfu að þarna sé þjónusta við almenning. Of mikið er einblítt á samkeppni, fremur en að styrkja og efla umræðu fyrir almannaheill."

 

En er ekki ódýr málflutningur fyrir þingmann meirhlutans og formans menntamálanefndar að gagnrýna Rúv, verandi í stöðu til að gera eitthvað í málinu? „Það er auðvitað ódýrt ef ég ætlaði mér ekki að ganga í málið. Ég mun beita mér fyrir því að þessi mál verði rædd og leitað leiða til að efla og styrkja Rúv. Það er þó ekki svo að allt sé ómögulegt. Rúv nýtur trausts almennings en betur má ef duga skal."

 

Skrifaðu athugasemd:












Til baka
Atburðadagatal
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir