Sauðlauksdalskirkja

Sauðlauksdalskirkja: mynd Helgi Hjálmtýsson
Sauðlauksdalskirkja: mynd Helgi Hjálmtýsson
Sauðlauksdalskirkja sem nú stendur er byggð árið 1863 en áður hafði staðið kirkja í Sauðlauksdal frá því snemma á 16. öld og þar áður bænhús um aldir.

 

Á árunum 1993-1997 var kirkjan algerlega endurbyggð frá grunni og reynt að miða við upphaflega gerð.

 

Kirkjan er eitt fegursta guðshús landsins, látlaus í fegurð sinni og yfirlætislaus og á marga merkisgripi og fagra. Prédikunarstólinn og hjálmur hans þykja afar fagrir.

 

Að jafnaði er messað fimm til sex sinnum á ári í kirkjunni.

 

Margir merkisklerkar hafa í gegnu tíðina setið í Sauðlaugksdal og nægir þar að nefna sr. Björn Halldórsson er fyrstur ræktaði kartöflur á Íslandi og var umhugað um margs konar framfarir í þjóðlífinu. Prestar sátu staðinn allt fram undir 1964 er síðasti prestur sem sat í Sauðlauksdal fór til annars embættis. Eftir það hefur sókninni að mestu leyti verið þjóðnað frá Patreksfirði að undanskildu stuttu tímabili í kringum 1990 en búseta prests í Sauðlauksdal hefur ekki verið síðan 1964.

 

Núverandi sóknarprestur er sr. Leifur Ragnar Jónsson á Patreksfirði og meðhjálpari er Rúnar Árnason Neðri-Tungu í Örlygshöfn. Formaður sóknarnefndar er Sigurbjörg Sigurbergsdóttir á Hvalsskeri.


Atburðadagatal
« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir
Héðan og þaðan