Það gerðist stórmerkur atburður á Patreksfirði í gær. Það var opnað Þróunarsetur á Patreksfirði.
Og þá spyr fólk, hvað er nú það ???. Svo ég skýri það lítilega út þá er þetta umgörð um hinar ýmsu stofnanir. Hugmyndafræðin er í raun sú að safna saman "einmennings" stofnunum. Yfirleitt eru þetta opinberar stofnanir sem hafa einungis einn starfsmann í vinnu á svæðinu. Eins og hefur verið hér hjá atvinnuþróunarfélaginu í nokkur ár. Þessum "einmennings"stofnunum er safnað saman í ´sameiginlegt húsnæði, t.d eins og það sem var verið að taka í notkun í gær. Fólk hefur þá vinnustað, hugmyndir skapast í kaffistofunni og hvert stiður annað. Það er heldur ekki gott fyrir fagmann að starfa einn, það veit undirrituð mjög vel af eigin reynslu. Fyrir utan svona praktísk atriði sem skipta auðvitað máli. En í þessu húsnæði sem opnað var i gær er áætlað að starfsmenn frá atvinnuþróunarfélaginu verði ásamt, Vinnumálastofnun, Fræðslumiðstöð Vestfjarða,Háskólaseturs HÍ og fl og fl. Það er reynsla annara þar sem svona þróunarsetur hefur verið stofnað að það vindur uppá sig, stækkar og dafnar. Eg á ekki von á öðru en að slíkt gerist hér einnig.
Reyndar vil ég taka svo stórt upp í mig að segja að þetta kom til með að skipta sköpum í atvinnulífinu hér. Ég held og veit og trú að við erum að snúa þróuninni við. Auðvitað þarf að hugsa vel um þetta "nýfædda barn" okkar, hlúa að því að berjast fyrir því og allt það. Ég efast ekki um að okkur íbúum í Vesturbyggð takist það og takist að byggja þetta upp í sameiningu, samhennt.
Mig langar líka að deila með ykkur að það var verið að tala um þarna í gær, af gestum sem komu að, hve mklir jákvæðir straumar kæmu nú frá Vesturbyggð. Eitthvað væri að breytast. Litla hjartað mitt sló aukaslag við svona ummæli. Okkur sem búum hér í Vesturbyggð erum öll að takast að breyta viðhorfum og breyta neikvæðni í jákvæðni - nú er leiðin einungis upp á við - það held ég að sé alveg víst.
Að lokum langar mig að þakka þeim aðila eða aðilum sem settu þessa miða á bílana okkar á föstudagsmorguninn. Hvað sem fólk vill segja eða taka þessu, ´þá held ég að fáir hafi gefið meira af sér þennan dag. Og viðkomandi hefur örugglega náð takmarki sínu, því ég held að flestum hafi hlínað um hjartarætur, svona í morgunsárið og lítið annað var rætt held ég á vinnustöðum bæjarinns en þetta hvaða miði var á hvaða bíl og HVER gerði þetta, var stóra spurningin.
Sett inn þann 16. september 2007