Þolinmæði þrautin vinnur allar.
Við megum ekki láta deigan síga í baráttu okkar við stjórnleysið og þá engu byggðarstefnu sem er í gangi hjá okkar háu herrum. Við ætlum að leggjast á vald RÚSSNESKU MAFÍUNAR hehe, þeir sem það segja eru ekki með öllu mjalla og ekki talandi við frekar en fyrri daginn. Við megum ekki láta þá sem svona tala draga úr okkur kjark. Því eitt er víst, þegar við verðum farin þá hefur engin áhuga á að koma hér eða vera. Þetta verður eins og Síbería Íslands.
300.000.000.000 kr. kosta herlegheitin og yrðu þar með láng stærstu framkvæmdir Íslandssögurnar. Það tekur meira en einn dag, eina viku eða 1 ára að ákveða svona lagað. En boltinn er hjá okkar nýju vinum Rússum og er það bara gott, því þeir eins og við Íslendingar eru að ryðjast inn á hinn vestræna markað (við í banka og verslun) og hafa ekkert nema gott í hyggju.
Mig langar enn og aftur til þess að hvetja ríkisstjórn okkar til þess að lýsa yfir stuðning við okkur ekki bara muldar þunnu hljóði eitthvað sem við skiljum ekki og um leið gefa leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu eða stofna til samstarfs eða stuðnings við námuvinnslu sem er að fara að eiga sér staða á Austurströnd Grænlands. Sýnið stuðning í verki við okkur sem hér búum og ekkert múður. Það væri nú gaman ef einhver blaðasnápurinn gæti komið þessu á framfæri, en það verður líklega seint því þeir eru flestir fæddir í 101 RVK og vita líklega ekki af hverju grasið er grænt eða himinn blár. Þeim er líklega ekki heldur kennt að höfuðborginn var byggð upp á landsbyggðinni. Ekki síst Vestfjörðum.
Að lokum vil ég hvetja alla þá sem hér búa að hafa HÁTT og láta ekki deigan síga. Við eigum fullan rétt á því að hafa atvinnu og lifa þar sem við viljum. Ég ætla að skila landinu af mér til minna afkomenda þannig að þeir getir haldið áfram að lifa og haft það gott í sátt við land og náttúru.
ÁFRAM VIÐ SEM HÉR BÚUM.
