Viðbrögð við athugasemdum
Heilir og sælir lesendur.
Ég tek til að rita á þessum vettvangi í framhaldi af skrifum Steinars V. Árnasonar lífeindafræðings og er það vegna ábendinga annarra um pistilinn. Ég játa það að ég geri lítið af því að elta uppi skrif hinna skrif- og frásagnarglöðu á blogg- og samskiptasíðunum hvað þá að taka þátt í umræðum á þeim vettvangi. Ég hef ekki tileinkað mér þetta nýja ritræðu- og samskiptaform en verð að bæta úr því til að vera í takti við tíðarandann.
Aftur að upphafi málsins. Steinar kvartar undan því að bæjarstjórnarmenn og konur utan ein nýti sér ekki vefdagbókina þann ágæta vettvang til að koma á framfæri sjónarmiðum í ýmsum málum. Ég er sammála þessu. Ég minni samt á að við höfum fram til þessa haft Tíðis hinn ágætasta vettvang í þessum efnum. Sá vettvangur hefur því miður verið lítið notaður. Ég hef að vísu með hléum nýtt mér hann til að birta viðhorf mín í ýmsum málum og til að kynna önnur. Það er nú svo, hvað mig varðar, að ég hef ekki gefið mér tíma um þessar mundir til að pára á blað og birta þau hugar- og viðfangsefni mín sem tengist sveitarstjórnarmálunum, samfélaginu og umhverfinu.
Vinarbæjaheimsókn. Það var þörf ábending frá Steinari að nefna vinarbæjaheimsóknina sem að þessu sinni var til Nord Fyns Kommune 14. til 15. september. Mun ég með mestu ánægju gera grein fyrir þeirri heimsókn innan ásættanlegra tímamarka og styðja frásögnina með myndum eftir aðstæðum. Ég tók reyndar engar myndir sjálfur en lét annan., sem var í ferðinni, um þau mál.
Stöðugir fundir og einlægt snakk og makk: Það, sem ásamt öðru heldur mér frá skrifum, eru sífelldir fundir og nánast óslitið snakk og ferðalög í þágu heildarinnar.
Nýliðinn viðburður. Laugardaginn 13. otóber var ég viðstaddur þann viðburð á Patreksfirði að minnisvarði um Guðrúnu Valdadóttur var afhjúpaður við Mikladalsá við svonefndan Grýtufoss. Guðrúnu var drekkt í Mikladalsá eftir að hafa verið dæmd dæmd brotleg samkvæmt lagaákvæðum Stóradóms. Líta má á það framtak kenfélagskvenna í Sif sem siðferðilegan stuðning við Guðrúnu og jafnframt allar konur sem líflátnar voru samkvæmt myrkri og grimmri réttvísi Stóradóms.
Að öðru. Hér með fylgja tvær ljósmyndir. Önnur tekin vestur Patreksfjörð af fjallinu ofan við skógrækina á Drengjaholti og hin af fjallinu, væntanlega Veturlandafjalli, austan við svonefnd Kríuvötn upp af Litlaldal og sýnir vötnin í haustblíðunni.
Með bestu kveðjum
Úlfar B. Thoroddsen
