Félagsleg heimaþjónusta
Markmið þjónustunnar er að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi við sem eðlilegastar aðstæður. Heimaþjónusta er veitt þeim sem geta ekki hjálparlaust séð um heimilishald vegna skertrar getu eins og veikinda, álags, öldrunar eða fötlunar.
Gjald er tekið fyrir heimaþjónustuna og fer upphæðin eftir tilteknum tekjuviðmiðum. Þeir sem eru undir lágmarks tekjumörkum fá þjónustuna gjaldfrjálst en þeir sem eru yfir efri tekjumörkum greiða fullt verð fyrir þjónustuna. Miðað er við tekjur næstliðins árs.
|
||||
Tekjur einstakl. (kr.) . |
Tekjur hjóna (kr.) |
Afsláttur |
Greiðslufjárhæð kr. |
Flokkur |
| Allt að 1.944.000 | Allt að 2.700.000 | 100% | 0 | A |
| 1.944.000 - 2.452.000 | 2.700.000 - 3.434.000 | 70% | 302 | B |
| 2.452.000 og hærri | 3.434.000 og hærri | 0% | 1.008 | C |
Viðmiðunartaxti er 1008 kr.
Hér má nálgast Reglur Vesturbyggðar um félagslega heimaþjónustu og eyðublöð fyrir umsókn um félagslega heimaþjónustu, annars vegar er rafræn umsókn (hægt að fylla út á vefnum og prenta síðan út) og hins vegar eyðublöð sem má prenta og fylla skriflega út, og senda síðan með almennum pósti, faxi eða tölvupósti á netfangið: felagsmalafulltrui@vesturbyggd.is.
Félagsmálafulltrúi Vesturbyggðar, Elsa Reimarsdóttir, veitir frekari upplýsingar í síma 450 2300.

