Félagsleg Þjónusta

Fjárhagsaðstoð

Vegna sérstakra aðstæðna sem hafa skapast á síðustu vikum er hér bent á vef Félagsmálaráðuneytis til frekari upplýsinga, http://www.felagsmalaraduneyti.is/upplysingar.

Í 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir: Skylt er hverjum manni að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.  Þegar einstaklingur er ekki fær um að sjá um eigin framfærslu eða fjölskydlu sinnar getur hann leitað eftir aðstoð til síns sveitarfélags.
Félagsmálafulltrúi Vesturbyggðar veitir allar upplýsingar í síma en umsækjandi um fjárhagsaðstoð þarf að panta og fara í viðtal hjá félagsmálafulltrúa áður en umsókn er tekin fyrir. Viðtalspantanir eru í síma 4502300.

Réttur til fjárhagsaðstoðar
Fjárhagsaðstoð er veitt vegna framfærslu einstaklinga og fjölskyldna. Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eru fjárráða, eiga lögheimili í Vesturbyggð og hafa tekjur undir ákveðnum viðmiðunarmörkum.  Atvinnurekendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar þurfa að hafa hætt rekstri og lagt inn virðisaukanúmer til að geta sótt um fjárhagsaðstoð.

Aðstoðin er í formi styrks eða láns. Jafnan eru kannaðir aðrir möguleikar en fjárhagsaðstoð.  Fjárhagsaðstoð er einungis veitt í tengslum við önnur úrræði, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar. Um fjárhagsaðstoð í Vesturbyggð gilda reglur sem bæjarstjórn hefur samþykkt í samræmi við 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (nr. 40/1991).

Upphæð fjárhagsaðstoðar
Upphæð fjárhagsaðstoðar tekur mið af tekjum umsækjanda eða hjóna/sambúðarfólks og ákveðinni grunnfjárhæð sem er  fyrir einstakling kr. 117.193 og fyrir hjón kr. 187.508, m.v. 1. janúar 2009.

Umsókn um fjárhagsaðstoð
Sótt er um fjárhagsaðstoð á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu Vesturbyggðar.
Eftirtalin gögn þurfa að hafa borist áður en umsóknin er tekin fyrir:
- Staðfest skattframtal og álagningarseðill.
- Tekjuseðlar (laun/bætur) fyrir síðustu 2 mánuði.
- Skráning hjá Vinnumálastofnun eða læknisvottorð um óvinnufærni.
- Önnur gögn eða gjöld sem við geta átt, s.s. yfirlit yfir greiðsluþjónustu.

Erlendir ríkisborgarar verða að leggja fram dvalarleyfisskírteini frá Útlendingastofnun. Umsókn þarf að vera undirrituð af umsækjanda. Eyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 63, Patreksfirði.  Eyðublöðin eru einnig tiltæk á heimasíðunni og er hægt að prenta þau út, fylla út og senda til félagsmála- og frístundafulltrúa.

Ferli umsóknar
Þegar viðtal hefur farið fram og öll gögn hafa borist, er umsóknin lögð fyrir félagsmálanefnd. Áfrýja má niðurstöðu félagsmálanefndar til Úrskurðarnefndar félagsþjónustu hjá félags- og tryggingamálaráðuneyti.

Allir styrkir eru skattskyldir og af þeim er reiknuð staðgreiðsla skatta. Þá ber að telja þá fram á skattframtali. Þeir umsækjendur sem ætla að nýta skattkort þurfa að skila því inn tímanlega.

Ráðgjafastofa um fjármál heimilanna

Atburðadagatal
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir