Fjölskyldan
Sveitarfélaginu er skylt, í samvinnu við foreldra, forráðamenn og aðra þá aðila sem hafa með höndum uppeldi, fræðslu og heilsugæslu barna og ungmenna, að gæta velferðar og hagsmuna þeirra í hvívetna. Sjá skal til þess að börn fái notið hollra og þroskavænlegra uppvaxtarskilyrða, t.d. leikskóla og tómstundaiðju.
Félagsmiðstöðin Vest-End er til húsa í neðri skóla Patreksskóla og stendur unglingum úr 7.-10. bekk til boða að nýta sér þá þjónustu sem þar er í boði.
Dagforeldrar
Sveitarfélagið hefur sett sér reglur um leyfisveitingar vegna daggæslu í heimahúsum. Reglur og eyðublöð má nálgast á heimasíðunni. Foreldrar geta haft beint samband við starfandi dagforeldra sem veita allar frekari upplýsingar. Eins er hægt að hafa samband við félagsmála- og frístundafulltrúa Vesturbyggðar í síma 450 2300 eða með tölvupósti á netfangið felagsmalafulltrui@vesturbyggd.is. Daggæsla barns er þá aðeins niðurgreidd að í gildi sé samningur milli dagforeldris og sveitarfélagsins.
Starfandi dagforeldri:
Josephine Therese Wade, Lönguhlíð 10 Bíldudal, hs. 456 2216 gsm. 862 2436
Gæslutími frá 07.45-12.45
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf!
Vesturbyggð hefur verið þátttakandi í verkefninu Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! frá árinu 2006. Í gangi er aðgerðaráætlun sem nálgast má hér en þar hefur sveitarfélagið sett sér markmið varðandi heilsueflingu íbúa sveitarfélagsins. Lesið meira um verkefnið hjá Lýðheilsustöð
Ýmsar upplýsingar
Um meðlög/framlög
Jöfnunarstyrkur vegna náms í framhaldsskóla

