Slökkvilið Vesturbyggðar

Slökkvilið Vesturbyggðar

Neyðarlínan 112

annast útkall slökkviliðsins


Slökkviliðsstjóri


Davíð Rúnar Gunnarsson s: 891-7426

slokkvilid@vesturbyggd.is


Varaslökkviliðsstjóri

Ingimundur Óðinn Sverrisson


Þjónustu slökkviliða er skipt upp í eftirfarandi meginþjónustuflokka:


Vatnsöflun og slökkvistarf utanhúss


Slökkviliðið sinnir slökkvistarfi utanhúss.

Slökkvistarf innanhúss og reykköfun


Brunavarnir Vesturbyggðar sinna slökkvistarfi innanhúss og reykköfun.
Til þess eru þjálfaðir reykkafarar og samkvæmt skilgreiningu Evrópusambandsins eru það hættulegustu störf sem stunduð eru á friðartímum, enda er krafist að lágmarki 25 tíma þjálfun á ári fyrir utan þá 20 tíma sem menn æfa sem venjulegir slökkviliðsmenn á ári.

Viðbrögð við mengunar- og eiturefnaslysum og eiturefnaköfun


Mengunarvarnir er ný þjónusta sem sveitarfélögunum er skylt að sinna og sér slökkviliðið um viðbrögð á landi.

Eldvarnareftirlit


Slökkviliðsstjóri sinnir eldvarnareftirlit á svæðinu.

Önnur þjónusta sem varðar starfsemi slökkviliðsins.


Björgun fólks með klippum, glennum og öðrum útbúnaði, m.a. úr bílflökum


Á slökkvistöðinni á Patreksfirði eru til staðar björgunartæki til björgunar m.a. úr bílflökum. Slökkviliðið á Patreksfirði sinnir þessum þætti og þjálfar til þess mannskap.


Sjúkraflutningar


Slökkviliðin sinna ekki sjúkraflutningum, þeir eru á höndum RKÍ og Heilbrigðisstofnunar Patreksfjarðar.


Dælingar


Slökkviliðin sinna þjónustu við íbúa sveitarfélagsins ef á þarf að halda, t.d. hreinsa upp vatn vegna leka eða dælingar úr skipum samkvæmt beiðnum þar um.


Þjónusta við önnur brunavarnarsvæði


Slökkviliðin sinna aðstoð við slökkvistörf á öðrum brunavarnarsvæðum samkvæmt beiðni viðkomandi slökkviliðsstjóra eða lögreglu. Engir skriflegir samningar eru um þessa samvinnu.

Verði bruni í Vesturbyggð eða á Tálknafirði er samningur um að kalla til strax öll liðin á staðinn.

Það er á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði.
Atburðadagatal
« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir
Héðan og þaðan
Skolastarfsemi
  • Stutt í vinnu og skóla.
  • Skrímsli í hverjum firði

  • Glæsilegar íþróttamiðstöðvar
  • Fjölbreytt menningar- og tónlistarlíf
  • Skoða staðreyndir nánar
Vefdagbækur