Slökkvilið Vesturbyggðar

Brunavarnaáætlun

Vinna við brunavarnaráætlun fyrir Vesturbyggð stendur yfir.
Ákveðið var að gera sameiginlega áætlun fyrir Vesturbyggð og Tálknafjörð enda liggja þau svæði saman og þótti það skynsamlegt þar sem um nokkuð viðamikla vinnu var að ræða.
Komin eru nokkuð góð drög sem búið er að kynna fyrir bæjarstjórn Vesturbyggðar og sveitastjórn Tálknafjarðar, þar eru þau í vinnslu.
Þegar sú vinnsla er búin verða drögin send út til þeirra aðila sem koma með einum eða öðrum hætti að áætluninni til umsagnar.
Vonast er til þess að hægt verði að samþiggja þessa áætlun í haust.


Brunavarnaráætlun á að gefa góða mynd af því hvernig brunavörnum er háttað á því svæði sem hún tekur til.

Tekið er saman hvaða hættur eru til staðar og hversu miklar líkur eru á því að eitthvað gerist.
Þá er tekin staðan á þeim björgum sem til eru á svæðinu til þess að fást við hættuna.

Þegar þetta er borið saman og við þá þjónustu sem sveitarfélaginu er ætlað að veita kemur út niðurstaða og hún er síðan sett í tillögur til úrbóta sé þeirra þörf.

Þær tillögur eru síðan settar upp í framkvæmdaáætlun til fimm ára.

 

 

Brunavarnaáætlun má nota sem grunn að gæðastjórnun og úttekt á starfsemi slökkviliðs fyrir þá aðila sem bera ábyrgð á brunavörnum í sveitarfélaginu. Áætlunin auðveldar einnig íbúum sveitarfélagsins að fá upplýsingar um skipulag slökkviliðs og markmið með rekstri þess í sveitarfélaginu. Það sama gildir um nærliggjandi sveitarfélög og geta brunavarnaráætlanir einnig orðið grunnur að auknu samstarfi á milli þeirra. Einnig auðveldar hún Brunamálastofnun að hafa yfirlit yfir starfsemi slökkviliða í landinu og meta hæfni þeirra og hvar sé helst þörf á úrbótum.


 

Hér er hægt að skoða drögin.

Þetta eru drög og skal skoðast sem slík.

Atburðadagatal
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir