Flugslysaæfing 2006
Slökkvilið Vesturbyggðar tók þátt í flugslysaæfingu á Bíldudalsflugvelli 2006 eins og aðrir neyðaraðilar á svæðinu.
Æfingin tókst vel og hér er birt lokaskýrsla sem unnin var eftir æfinguna.
Markmið með útgáfu þessarar lokaskýrslu er:
Að draga fram hvað vel fór í viðkomandi æfingu svo viðbragðsaðilar viti hvað þeir gerðu rétt og hvað vel fór á æfingunni.
Að draga fram hvað betur hefði mátt fara í viðkomandi æfingu svo viðbragðsaðilar geti dregið lærdóm af því og bætt úr.
Á sama tíma var flugslysaáætlun unnin fyrir flugvöllinn, ennþá er um drög að ræða og á eftir að leggja loka hönd á verkið og samþiggja
Vonast er til þess að í haust komi allir aðilar saman og fari yfir lokaskýrsluna og ljúki við flugslysaáætlunina fyrir flugvöllinn.
Hér er flugslysaáætlunin

