Reykskynjarar
Jónískir skynjarar
Þeir skynja jónir í loftinu. Það er, þegar eldur kviknar þá myndast mun meira af jónum en eru dags daglega. Þannig skynjar hann bæði sýnilegan reyk og ósýnilegan (svipaðan og kemur frá brauðrist eða steik í ofni). Hann nær að skynja þetta strax á byrjunarstigi bruna sem er mjög mikilvægt því þá höfum við meiri tíma til þess að bregðast við.
Þessir skynjarar eru hentugir í öll venjuleg herbergi, stofur, stigaganga, geymslur og víðar.
Optískir
Þessir skynja reyk. Það mætti líkja því við að sendur er leysir geisli á spegil sem endurkastar honum til baka, ef eitthvað fer á milli þá gefur hann boð. Þessi skynjari skynjar til dæmis ekki ósýnilegan reyk frá brauðrist, einungis þegar sá reykur væri orðinn þykkur þá „sæi“ hann reykinn.
Þessi hentar á alla staði þar sem jónískur og einnig er hægt að setja hann nálægt eldhúsi, sem getur verið góður kostur.
Hitaskynjari
Skynjar breytingu á hita í umhverfinu. Hitamörkin eru 54° til 62° C. Hentar vel þar sem erfitt er að nota reykskynjara, svo sem í bílageymslur, sorpgeymslur og þvottahús.
Gasskynjarar
Skynja gasleka, þurfa að vera tengdir við rafmagn, 230V eða 12V gott að hafa í sumarbústöðum, eldhúsi þar sem gaseldavél er og öllum öðrum stöðum þar sem gas er til staðar.
Vatnsskynjarar
Skynja vatn. Hentugir í baðherbergi, geymslur eða öðrum stöðum þar sem hætta er á vatnsleka.Slökkvitæki
Eldvarnarteppi
Fyrstu viðbrögð

