Sorp og förgun
Fyrirspurnir má senda á skrifstofa@gamarvest.is, einnig má hringja í síma 456 3710 og fá leiðbeiningar, sá einnig fyrirspurnir og svör.
ATH: Sorphirðudagatöl eru í vinnslu og detta inn innan skamms.
Heimilistunnur
Á hverju heimili er ein 240L tunna fyrir óflokkaðan heimilisúrgang. Tunnurnar verða losaðar á tveggja vikna fresti.
Á Barðaströnd, Rauðasandi og í sveitum Vesturbyggðar eru 360L tunnur og eru þær losaðar á þriggja vikna fresti.
Í tunnuna má setja allan heimilisúrgang, matarleifar, kaffikorg, matarsmitaðan pappír, og plast, samsettar umbúðir (áleggsbréf, ostabox, tannkremstúpur og fl.) einnig glerílát, ryksugupoka, bleiur, dömubindi og úrgang frá gæludýrum.
Gámavellir
Þrír gámavellir eru til staðar: á Patreksfirði, Bíldudal og á Tálknafirði.
Á hverjum gámavelli er gámur fyrir þurrt flokkað endurvinnsluefni. Endurvinnsluefni sem hér um ræðir eru: bylgjupappi og sléttur pappi, blöð, tímarit og skrifstofupappír, fernur, plast (hart og lint), málmar, rafhlöður og spilliefni.
Íbúum er frjálst að losa sig við almennan heimilisúrgang allt að einum rúmmetra í hverri ferð án gjaldtöku. Íbúar sem standa í framkvæmdum greiða fyrir þann úrgang sem þeir skila inn á gámavelli.

- Sorphirðudagatal fyrir Bíldudal
- Sorphirðudagatal fyrir Patreksfjörð
- Sorphirðudagatal fyrir Tálknafjörð