Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Lokun við gatnamót Þórsgötu og Mýra
Vegna framkvæmda við ræsi neðan við vinnubúðir Suðurverks, þarf að loka fyrir umferð um það svæði næstu fjóra daga við gatnamót Þórsgötu og Mýra.
Skrifað: 20. febrúar 2023
Þeir sem þurfa að komast um svæðið geta sett sig í samband við undirritaðan.
Vonir standa til að framkvæmdum ljúki fljótt og að umferð verði hleypt um svæðið sem fyrst.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem skapast geta vegna þessara framkvæmda.