Skipulagsauglýsing - Patrekshöfn
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi:
Skrifað: 20. október 2023
Breyting á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði, Vesturbyggð.
Tillagan felur í sér skilgreiningu á fjórum íbúðarlóðum við Þórsgötu neðan við Mýrar á svæði sem skilgreint er sem ÍB1 í gildandi Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 23. október til 4. desember 2023 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 4. desember 2023.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar.