Staða skrifstofumanns á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf skrifstofumanns á skrifstofu embættisins á Patreksfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðsla
- Samskipti og aðstoð við viðskiptavini
- Skrifstofu- og ritarastörf
- Önnur tilfalli verkefni í málaflokkum sem sinnt er hjá embættinu
Hæfniskröfur
- Reynsla af skrifstofustörfum æskileg
- Jákvæðni, þjónustulund og góðir skipulags- og samkiptahæfileikar
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta unnið undir álagi
- Metnaður og áreiðanleiki í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslensku- og enskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2025
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Starfið er tímabundið til 1. október með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Þrjár starfsstöðvar eru innan embættisins: Á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru 17 í 14.8 stöðugildum. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.
Sýslumenn eru í fremstu röð í stafrænni stjórnsýslu og hafa metnað til að veita skjóta og góða þjónustu. Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi. Nánar má fræðast um embætti sýslumanna á vefnum www.island.is á slóðinni www.syslumenn.is.
Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veita Jónas B. Guðmundsson á netfangið jonas.gudmundsson@syslumenn.is og í síma 458 2400, og Gabríela Aðalbjörnsdóttir á netfangið gabriela@syslumenn.is í síma 458 2400.