Atburðir

Haldið uppá dag leikskólans

Dagur leikskólans
Dagur leikskólans
Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

 

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur", foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum.

 

Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu starfi leikskólanna.

 

Sólarfagnaður

Föstudaginn 5. febrúar nk. kl. 20.00 verður sólarfagnaður, söngur og gleði í Patreksfjarðarkirkju.

 

Þeir sem fram koma eru :
Elzbieta Kowalczyk, Friðbjörg Matthíasdóttir, Gestur Rafnsson, Guðný Gígja Skjaldardóttir, Halldóra Björnsdóttir, Jón Kr. Ólafsson, Kvartett Camerata, Magnús Ólafs Hansson, Mariola Kowalczyk, Matthías Ágústsson, MEG@ tríó, Ólöf Þórðardóttir, Rafn Hafliðason, Steinunn Sturludóttir og Trausti Þór Sverrisson.

 

Aðgangur að fagnaðinum er 1.500 kr. en frítt er fyrir 12. ára og yngri og 67. ára og eldri. Greiða þarf með peningum.
Tekið er við frjálsum framlögum.

 

Allur ágóði rennur til Líknarsjóðs Patreksfjarðarkirkju.

 

Atburðadagatal
« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir
Héðan og þaðan
Skolastarfsemi
  • Fjölbreytt menningar- og tónlistarlíf
  • Skrímsli í hverjum firði

  • Stutt í vinnu og skóla.
  • Glæsilegar íþróttamiðstöðvar
  • Skoða staðreyndir nánar
Vefdagbækur