Atburðir

Bæjarstjórnarfundur

Vesturbyggð
Vesturbyggð
214. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, miðvikudaginn 3. febrúar 2010 og hefst kl. 17.


Dagskrá


Almenn erindi
1. 1001064 - Skýrsla Vegagerðarinnar jan. 2010
Vinsamlega takið með ykkur áðursenda skýrslu frá síðasta bæjarstjórnarfundi.

2. 1001031 - Þriggja ára áætlun 2011-2013.

1. febrúar 2010
Ragnar Jörundsson bæjarstjóri
.

Íslenska fyrir útlendinga

Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
 Í náminu er lögð megináhersla á að fólk geti bjargað sér í daglegu lífi og úti í samfélaginu jafnframt því sem lagður er grunnur að málfræðiþekkingu.


Hefst 1. febrúar

Tími: Kennt þriðjud. og fimmtud. kl. 17:00-19:00 (8 skipti)
Kennari: Guðrún Norðfjörð
Staður: Þekkingarsetrið Skor
Verð: 14.500 kr. (30 kennslustundir)

Lærum að sníða og sauma

Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Á námskeiðinu verður kennt að taka mál, taka upp snið úr blöðum, rétta snið af - sníða, fara yfir saumför og sauma saman flík eftir því sem hver og einn óskar.

Sníðablöð verða á staðnum en nemendur eru hvattir til að koma með sín eigin sníðablöð eða snið. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Nemendur þurfa að koma með efni, saumavél og saumaáhöld.

 

Hefst 1. febrúar

Tími: Kennt þriðjud. kl. 19:00-21:00 (5 skipti).
Kennari: Sólveig Ásta Jóhansdóttir
Staður: Þekkingarsetrið Skor
Verð: 15.800 kr. (21 kennslustund).

Lífshlaupið

Lífshlaupið
Lífshlaupið
Lífshlaupið, fræðslu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, verður ræst í þriðja sinn miðvikudaginn 3. febrúar.

 

Um 9.300 manns tóku þátt á síðasta ári og fjölgaði um 1.600 á milli ára. Líflshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:

  • Vinnustaðakeppni frá 3.-23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
  • Hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 3.-23. febrúar, fyrir 15 ára og yngri
  • Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð sína hreyfingu allt árið

 

Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að hreyfingu í frítíma, heimilsstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta.

 

Vesturbyggð vill eindregið hvetja alla íbúa sveitarfélagsins til þess að kynna sér verkefnið á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.

Bæjarstjórnarfundur, aukafundur

214. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, miðvikudaginn 3. febrúar 2010 og hefst kl. 17.


Dagskrá

Almenn erindi
1. 1001064 - Skýrsla Vegagerðarinnar jan. 2010
Vinsamlega takið með ykkur áðursenda skýrslu frá síðasta bæjarstjórnarfundi.

2. 1001031 - Þriggja ára áætlun 2011-2013.

 

1. febrúar 2010
Ragnar Jörundsson bæjarstjóri.

Tungusilungur

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Á súpufundi í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði fimmtudaginn 4. febrúar mun Freyja Magnúsdóttir kynna fyrirtækið Tungusilung í Tálknafirði og starfssemi þess.

Boðið er upp á súpu, brauð og kaffi á 1.200 kr.

Fundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.

Haldið uppá dag leikskólans

Dagur leikskólans
Dagur leikskólans
Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

 

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur", foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum.

 

Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu starfi leikskólanna.

 

Sólarfagnaður

Föstudaginn 5. febrúar nk. kl. 20.00 verður sólarfagnaður, söngur og gleði í Patreksfjarðarkirkju.

 

Þeir sem fram koma eru :
Elzbieta Kowalczyk, Friðbjörg Matthíasdóttir, Gestur Rafnsson, Guðný Gígja Skjaldardóttir, Halldóra Björnsdóttir, Jón Kr. Ólafsson, Kvartett Camerata, Magnús Ólafs Hansson, Mariola Kowalczyk, Matthías Ágústsson, MEG@ tríó, Ólöf Þórðardóttir, Rafn Hafliðason, Steinunn Sturludóttir og Trausti Þór Sverrisson.

 

Aðgangur að fagnaðinum er 1.500 kr. en frítt er fyrir 12. ára og yngri og 67. ára og eldri. Greiða þarf með peningum.
Tekið er við frjálsum framlögum.

 

Allur ágóði rennur til Líknarsjóðs Patreksfjarðarkirkju.

 

Sóknaráætlun landshluta

Fundur á vegum Fjórðungssambands Vestfirðinga um sóknaráætlun landshluta verður haldinn í Bolungavík 6. febrúar.

 

Fundurinn er ætlaður fulltrúum sveitarfélaga, fulltrúum atvinnulífsins auk íbúa sem Fjórðungssambandið tilnefnir.

Þjóðfundur á Vestfjörðum

Þjóðfundur á Vestfjörðum verður laugardaginn 6. febrúar frá kl. 10 - 17 í íþróttahúsinu í Bolungarvík.

Markmiðið með 20/20 - sóknaráætlun fyrir Ísland er að mótuð verði heildstæð stefna fyrir Ísland í þágu atvinnulífs og samfélags. Ísland skipi sér aftur í fremstu röð í verðmætasköpun, menntun, velferð og lífsgæðum. Sóknaráætlunin verði byggð á jafnrétti kynjanna, heilbrigðum viðskiptaháttum og grænni atvinnuuppbyggingu í samræmi við hugmyndir sjálfbærrar þróunnar.

Sólarkaffi á Bíldudal

Sólarkaffi
Sólarkaffi
Sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar verður haldið í Baldurshaga á Bíldudal sunnudaginn 7. febrúar kl. 15.

 

Spilað verður bingó og í boði eru góðir vinningar! Eitt spjald kostar kr. 300, en tvö spjöld kr. 500.

 

Aðgangseyrir er kr. 1.000 fyrir fullorðna en kr. 500 fyrir börn á skólaaldri og frítt fyrir yngri börn.

Samstaða um endurreisn

Samfylkingin boðar til opins fundar í Félagsheimili Patreksfjarðar í dag, miðvikudag, kl. 20.


Frummælendur á fundinum eru:

 

  • Ólína Þorvarðardóttir
  • Magnús Orri Schram
  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir

 

Samfylkingin hvetur alla til að koma og skiptast á skoðunum við forystufólk Samfylkingarinnar. Á fundinum verða flutt stutt ávörp og spurningum gesta svarað. Allir eru velkomnir.

Tilurð öskupoka

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Á súpufundi í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði fimmtudaginn 11. febrúar mun Silja Björg Jóhannsdóttir kynna tilurð öskupokana, en öskudagurinn er miðvikudaginn 17. febrúar nk.

 

Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr. og hefst fundurinn eins og áður kl. 12:30.

Vinnufundur Breiðafjarðarfléttunnar

Fléttan
Fléttan
Aðstandendur Breiðafjarðarfléttunnar funda dagana 12. og 13. febrúar í Langaholti um svæðisbundna vöruþróun og uppbyggingu í fuglaskoðun með aðstoð færustu sérfræðinga.

 

Gert er ráð fyrir að Vestfirðingar og aðrir geti farið með Baldri fimmtudaginn 11. febrúar og gist í Langaholti og svo er farin aukaferð með Baldri laugardaginn 13.2.kl.15.00.

 

Svanborg Siggeirsdóttir stjórnarformaður Breiðafjarðarfléttunnar setur fundinn á föstudagsmorgni en síðan flytur Hrafn Svansson framkvæmdastjóri Gavia Travel erindi um fuglaskoðara og hvers vegna svæðið sé áhugavert fyrir þá viðskiptavini. Þá verða flutt erindi um tækifæri í samstarfi rannsóknastofnana og ferðaþjónustunnar, áhugaverða fugla á svæðinu og staði sem merkja mætti sem áfangastaði.

 

Að erindum loknum starfa vinnuhópar með aðstoð sérfræðinga. Á laugardeginum er svo kynning Ingólfs Stefánssonar frá Ferðaskrifstofunni Safaris á vetrarferðamennsku en fundinum lýkur upp úr hádegi á laugardeginum.

 

Breiðafjarðarfléttan, eða „Fléttan," er samstarfsverkefni ferðaþjónustuaðila á Snæfellsnesi, í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hugmyndafræðin að baki fuglaskoðunarverkefnisins byggir á því að með aðstoð sérfræðinga, svo sem líffræðinga, náttúrufræðinga og markaðsfræðinga verði búin til verðmæti í ferðaþjónustu sem eru stíluð inn á fuglaáhugamenn.

 

Nánir upplýsingar veitir Guðrún Eggertsdóttir, verkefnisstjóri, gudrun@atvest.is, 843 0580.

Þorrablót Barðstrendinga

Þorrablót Barðstrendinga verður haldið laugardaginn 13. febrúar í Birkimel.

Bifreiðaskoðun

Skoðunardagar á Tálknafirði 15.-19. febrúar frá 8-18, lokað í hádegi frá 12-13. Tímapantanir eru í síma 570 9205.

Frumherji á Tálknafirði
Strandgötu 44
Sími 570 9235

Landsbyggðin og fjölmiðlar

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
Á súpufundinum í dag, fimmtudaginn 18. febrúar, verður Gísli Einarsson fréttamaður með kynningu á efninu „Landsbyggðin og fjölmiðlar" í sjóræningjahúsinu á Patreksfirði.

 

Eins og á öllum súpufundum eru frjálsar umræður og fyrirspurnir til viðkomandi kynnis hverju sinni.

 

Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr. Fundurinn hefst eins og áður kl. 12.30.

Fundur um Patreksdaginn

Unnið er að undirbúningi fyrir hátíðahöld á Patreksdeginum 2010, þann 17. mars.

 

Auglýst er eftir áhugasömum aðilum í undirbúningshóp fyrir hátíðahöldin. Fundur fyrir áhugasama verður fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18 í Skor þekkingarsetri.

 

Patreksdagurinn er upplagður dagur til að halda hátíð í bæ og standa saman að fagnaðarhöldum eins og verið hefur. Í ár hafa komið fram hugmyndir um lengja hátíðina.

 

Samkvæmt Landnámu var fyrsti landnámsmaður í Patreksfirði Örlygur Hrappsson sem steig á land í firðinum sunnanverðum ásamt mönnum sínum. Þar heitir síðan Örlygshöfn. Nefndi hann fjörðinn eftir fóstra sínum, Patreki biskupi í Suðureyjum.

Bæjarstjórnarfundur

Vesturbyggð
Vesturbyggð
215. fundur bæjarstjórnar Vesturbyggðar, verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, miðvikudaginn 24. febrúar 2010 og hefst kl. 17:00


Dagskrá:


Fundargerðir til staðfestingar
1. 1001014F - Bæjarráð - 551
2. 1001015F - Bæjarráð - 552
3. 1001017F - Bæjarráð - 553
4. 1002001F - Bæjarráð - 554
5. 1002006F - Bæjarráð - 555
6. 1002004F - Skipulags- og byggingarnefnd - 135
7. 1001012F - Atvinnumálanefnd - 69
8. 1002002F - Hafnarstjórn - 112
9. 1002078 - Fundargerð fræðslunefndar nr. 76.


Fundargerðir til kynningar
10. 0912042 - Fasteignir Vesturbyggðar ehf. fundargerð nr. 39.


Almenn erindi
11. 1002079 - Heimild til lántöku hjá Ofanflóðasjóði.
12. 1001064 - Skýrsla Vegagerðarinnar jan. 2010
13. 1002075 - Bókun frá Jóni Hákoni Ágústssyni
14. 1002070 - Hagsmunaaðilar vegna úthlutunar starfsleyfa í Arnarfirði
15. 1002071 - Hagsmunaaðilar yfirlýsing vegna Arnarlax.ehf.
16. 1002076 - Þóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010
17. 1001048 - Verkefnið Ferðumst & fræðumst.
18. 1001031 - Þriggja ára áætlun 2011-2013


 


21.2.2010
Ragnar Jörundsson bæjarstjóri.

 

Breiðafjarðarfléttan kynnt

Breiðafjarðarfléttan
Breiðafjarðarfléttan
Á súpufundinum fimmtudaginn 25. febrúar mun Guðrún Eggertsdóttir kynna Breiðafjarðarfléttuna á Veitingastaðnum Vegamótum á Bíldudal

 

Eins og á öllum súpufundum er boðið upp á frjálsar umræður og fyrirspurnir til viðkomandi kynnis hverju sinni.

 

Súpa, brauð og kaffi á 1.200 kr. og hefst fundurinn kl. 12:30 eins og áður.

Vinjettudagskrá

Laugardaginn 27. febrúar mun Ármann Reynisson bjóða upp á vinjettudagskrá í Sjóræningjahúsinu.

Vinjettur eru örstuttar sögur og verða þær lesnar af heimamönnum í bland við tónlistaratriði. Ármann hefur gefið út níu vinjettubækur sem segja margar og ólíkar sögur, s.s. ferðasögur.

Dagskráin hefst kl. 16 og er frítt inn, kaffihúsið verður opið frá kl. 14-18. Dagskránna er að finna á www.sjoraeningjahusid.is.
Atburðadagatal
« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir