Atburðir

Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða

Ákveðið hefur verið í samráði við stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga að boða til aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða laugardaginn 4. september2010 , í framhaldi af Fjórðungsþingi Vestfirðinga.

Fundurinn verður haldinn á Hólmavík og hefst kl. 15:00, en nánari staðsetning verður kynnt síðar. Samkvæmt samþykktum Menningarráðsins velja sveitarstjórnir á starfssvæðinu fulltrúa á aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða og fara þeir með umboð viðkomandi sveitarstjórnar í samræmi við íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags þann 1. desember árið áður.

Á aðalfundi skal taka fyrir eftirfarandi mál:

  • Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.
  • Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda ef einhverjar eru.
  • Kosin stjórn og varastjórn, og tveir skoðunarmenn reikninga. Skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna ráðsins.
  • Ráðsstjórn leggur fram tillögur að fjárhagsáætlun næsta árs og breytingar á framlögum skv. samningi við ríkið.
  • Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  • Önnur mál.

Á aðalfundinum verða að þessu sinni einnig teknar fyrir breytingar á samþykktum Menningarráðsins
Atburðadagatal
« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir