Atburðir

Sólarkaffi

Sól
Sól
Hið árlega sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar verður haldið í félagsheimilinu Baldurshaga þann 12. febrúar næstkomandi, kl. 15.00.

Kaffiveitingar að hætti kvenfélagskvenna og spilað verður bingó.

Miðaverð á sólarkaffi er kr. 1.200 fyrir fullorðna og kr. 600 fyrir börn á grunnskólaaldri. Getum tekið kreditkort, ekki debet.

Fögnum hækkandi sól og gleðjumst saman á sólarkaffi á Bíldudal.

Maður er manns gaman!

Boðið er upp á skemmtikvöld með léttu vísnaþema næstkomandi laugardagskvöld, 18. febrúar, í Dunhaga á Tálknafirði undir heitinu maður er manns gaman.

Húsið opnar kl. 20.30

 

Öllum er heimilt að koma fram með skemmtiatriði, syngja, spila á hljóðfæri, lesa ljóð, flytja vísur, frumsamdar eða eftir aðra, segja skemmtisögur eða annað sem gaman er að og vekur hlátur.

 

Farið verður í botnakeppni og eru fyrri partar þessir:

 

Fyrsti fyrripartur:
Þrællinn kominn Þorra er,
þungur reyndist vetur

 

Annar fyrripartur:
Góa heilsar guma' og snót,
gleðjist allur lýður

 

Áhugasamir tilvonandi skemmtikraftar geta haft samband við vísnanefndina:
Lilja Magnúsdóttir í síma 895-2947
Pálína Hermannsdóttir í síma 690-9939
Heiðar Jóhannsson í síma 895-2500

 

Björgunarsveitin Tálkni, Kvenfélagið Harpa og Ungmennafélag Tálknafjarðar standa fyrir skemmtikvöldinu í fjáröflunarskini.

 

Bifreiðaskoðun

Bifreiðaskoðun í slökkvistöðinni á Tálknafirði 2012.

 

Minni ökutæki: 20.-24. febrúar
Minni ökutæki: 10.-13. apríl
Öll ökutæki: 11.-15. júní
Öll ökutæki: 10.-24. ágúst
Minni ökutæki: 15.-19. október

 

Tímapanantanir eru í síma 570 9205, 570 9235 og 570 9090.

 

Frumherji bifreiðaskoðun

 

243. fundur bæjarstjórnar

243. fundi bæjarstjórnar verður haldinn 22. febrúar nk.
Atburðadagatal
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir