Þjónusta við eldri borgara
Stuðlað skal að því að aldraðir geti búið við eðlilegt heimilislíf í umgengni við aðra svo lengi sem verða má. Jafnframt verði tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Sveitarstjórn skal sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum. Hér er m.a. átt við heimaþjónustu, félagsráðgjöf og heimsendingu matar. Jafnframt skal tryggja öldruðum aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi. Aldraðir eiga rétt á almennri þjónustu og aðstoð samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga en að öðru leyti fer um málefni þeirra eftir lögum nr. 125/199 um málefni aldraðra.
Félagsmálanefnd fer með málefni félagsþjónustu fyrir aldraða í umboði bæjarstjórnar.
Starfsmenn félagsþjónustu Vesturbyggðar sjá um framkvæmd þjónustunnar. Yfirmaður félagsþjónustunnar er Elsa Reimarsdóttir félagsmálafulltrúi felagsmalafulltrui@vesturbyggd.is og elsa@vesturbyggd.is sími 450 2300.

