Látrabjarg

Látrabjarg, © Mats Wibe Lund
Látrabjarg, © Mats Wibe Lund
Látrabjarg er fuglabjarg á Vestfjörðum. Það er stærsta sjávarbjarg Íslands, 14 km langt frá nesoddanum Bjargtöngum í vestri að Keflavík í austri og 441 metra hátt.

Látrabjargi er í daglegu tali skipt í fjóra hluta, sem heita Keflavíkurbjarg, Látrabjarg, Bæjarbjarg og Breiðavíkurbjarg.

 

Bjargtangar er vestasti tangi Íslands og líka Evrópu, á 24°32´3" vestlægrar lengdar.

 

Vestari hluti Látrabjargs er að verulegu leyti lóðrétt standberg frá bjargbrún til jávar. Bjargið er þverskurður af lagskiptum hraunlagastafla Vestfjarða, sem hlóðst upp í síendurteknum eldgosum fyrir um 12-13 miljónum ára. Síðan hafa roföflin ein ráðið landmótun.

 

Látrabjarg hefur verið nytjað frá landnámstíð.


Atburðadagatal
« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir