Ágætu íbúar Vesturbyggðar!
Höfundur: Jón Páll Jakobsson
Þetta kerfi bíður upp á svindl og brottkast ég fullyrði það að nánast í hverju sjávarplássi er brotin lög á hverjum degi þegar fiskur vigtaður, er það þannig kerfi sem við viljum hafa? Og ef bæjarstjórnin ætlar að taka sérhagsmuni fram yfir almannahagsmuni er hún augljóslega vanhæf. Hvernig er hægt að alhæfa með þessu kerfi, eins og staðan er í dag í okkar samfélagi, mjög skrýtið, jaðrar við umræðuna um litasjónvarpið á sínum tíma. Æskufélagi minn, Hávarður Örn Hávarðsson, skrifaði B.A ritgerð í vor sem heitir Bíldudalur, byggð og kvóti. Þar segir að íbúum á Bíldudal hafi fækkað um 50% frá því að kvótakerfið var komið á og þar kemur það líka fram með skýrum hætti að þetta kerfi hafi lagt grunninn af eyðingu byggðar á Bíldudal.
Þessi samfélagshnignun er ekkert að gerast í dag, hún hófst fyrir tveimur áratugum eða svo og hefur verið í boði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins en eitthvað er það með okkur sem ég get ekki skýrt að við tókum fullann þátt í því að grafa okkar eiginn gröf, en núna þegar á að fara ýta okkur ofan í gröfina í boði Vinstri grænna og Samfylkingarinnar er eins og við vöknum úr Þyrnirósasvefni og áttum okkur á að samfélagið okkar er að hruni komið. Og þá gerist það broslega, við tökum upp á því að verja þau öfl sem komu okkur í þessa stöðu, og ályktum jafnvel um ágæti kvótakerfsins og svo framvegis. Við áttum sjávarútvegsráðherra sem kom frá Vestfjörðum sem hefði átti að sjá þessa þróun, nei, hvað gerði hann, tók sérhagsmuni fram yfir og stakk höfðinu í sandinn og jafnvel í dag talar þessi ágæti maður (þó svo ég efist um ágæti hans) enn um kosti kvótakerfsins og ef því verði breytt hrynji byggð á Vestfjörðum, ég vona að þið íbúar Vesturbyggðar taki ekki mark á honum.
Ég get ekki séð hvernig við eigum að rétta byggðina við með núverandi kvótakerfi, þar sem öfl ráða, sem vilja með öllu leggja niður samfélög eins okkar, viljum við vera áfram leiguliðar útvaldra eða reyna skapa nýtt kerfi sem myndi treysta byggð og búsetu í landinu? Nú höfum við tækifærið og ég vona svo sannanlega að við látum það ekki gerast að sleppa því. Við búum mjög stutt frá mjög góðum og miklum fiskimiðum og erum fiskimannasamfélag og ég hef ekki minnstu áhyggjur af því að við yrðum undir í þeirri baráttu.
Við erum búnir að svíða fyrir auðvaldstefnuna og þá óráðsíu sem er búin að ríkja hér nánst í tvo áratugi í boði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og ég get ekki tekið undir með bæjarstjórn sem ekki sér það og virðist jafnvel vera sama sinnis eins og í sjávarútvegsmálum, og ætlar jafnvel að taka sérhagsmuni fram yfir skynsemi og það sem gæti komið samfélaginu í heild til góða. Ég verð því að fara hugsa alvarlega um það hvort ég hafi yfirhöfuð áhuga að búa í þannig samfélagi.
Jón Páll Jakobsson íbúi á Bíldudal í sveitarfélaginu Vesturbyggð.

