Almennt um kosningarnar
Laugardaginn 16. maí 2026 verður kosið annars vegar til sveitarstjórnar Vesturbyggðar og hins vegar til heimastjórna.
Hver er munurinn á sveitarstjórnarkosningum og heimastjórnarkosningum?
Kosningar til sveitarstjórnar fylgja kosningalögum en kosningar til heimastjórna fylgja reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga. Við sameiningu 2024 samþykktu sveitarstjórnir Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps reglur um kosningar til heimastjórna og eru þær enn í fullu gildi. Munurinn fyrir kjósendur felst aðallega í kosningaraldri og hvar skuli kjósa áður en kemur að kjördegi. Kosningaraldur til sveitarstjórnar er 18 ár en til heimastjórna er hann 16 ár.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sveitarstjórnarkosningum fer fram á skrifstofum sýslumanna um allt land fram til föstudagsins 15. maí en kjördagur er laugardaginn 16. maí. Atkvæði í sveitarstjórnarkosningum þarf að senda til Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði ef kosið er annars staðar en á Vestfjörðum. Hjá sýslumanni Vestfjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrifstofum þeirra og því verður komið til Patreksfjarðar fyrir kjördag.
Í heimastjórnarkosningunum er kosið í ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði frá og með föstudeginum 24. apríl til og með föstudagsins 15.maí fyrir allar fjórar heimastjórnirnar og á kjördegi 16. maí í öllum kjördeildum sveitarfélaganna. Jafnframt má óska eftir að fá að greiða atkvæði i póstkosningu þar sem kjósandi fær sendan atkvæðaseðil, ýmist í pósti eða rafrænt samkvæmt reglum þar um. Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag en íbúar 16-18 ára geta kosið í heimastjórnarkosningunum.
Nánari upplýsingar um atkvæðarétt og utankjörfundaratkvæðagreiðslu eru hér fyrir neðan.
Má ég kjósa?
Hægt er að fletta upp hvort maður megi kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.
Sveitarstjórnarkosningar
Kjörgengir eru:
- Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir voru með lögheimili í Vesturbyggð 8. apríl 2026.
- Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem eiga lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu og hafa náð 18 ára aldri á kjördag.
- Aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag, hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og eru skráðir með lögheimili í Vesturbyggð.
Heimastjórnakosningar
- Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 16 ára aldri á kjördag og sem skráðir voru með lögheimili í Vesturbyggð 8. apríl 2026.
- Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem eiga lögheimili í Vesturbyggð og hafa náð 16 ára aldri á kjördag.
- Aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa náð 16 ára aldri á kjördag, hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og eru skráðir með lögheimili í Vesturbyggð.
Hvar á ég að kjósa á kjördag?
Hægt er að fletta upp sínum kjörstað á heimasíðu Þjóðskrár.
Kosið verður til sveitarstjórnar og heimastjórna á kjördag á eftirfarandi stöðum:
- Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal
- Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd
- Íþróttahúsinu Bröttuhlíð á Patreksfirði
- Tálknafjarðarskóla
Hvenær er hægt að kjósa á kjördag?
Upplýsingar verða birtar síðar.
Hvað ef ég kemst ekki á kjördag?
Sveitastjórnarkosningar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst föstudaginn 17. apríl 2026.
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofu sýslumanns Vestfjarða að Aðalstræti 92 á Patreksfirði á afgreiðslutíma.
Þá er einnig hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um allt land fram til föstudagsins 15. maí. Atkvæði í sveitarstjórnarkosningum þarf að senda til Vesturbyggðar ef kosið er annars staðar en á Vestfjörðum. Hjá sýslumanni Vestfjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrifstofum þeirra og því verður komið til Patreksfjarðar fyrir kjördag.
Heimastjórnarkosningar
Kosið er í ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75 á Patreksfirði á opnunartíma:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-12:30 og 13:00-15:00
- Föstudaga kl. 10:00-13:00
Kosning hefst föstudaginn 24. apríl 2026.
Póstkosning
Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjörstað er hægt að óska eftir því að greiða atkvæði sitt með póstkosningu. Slík beiðni skal berast skrifstofu Vesturbyggðar í tölvupósti eða í síma og skal taka fram hvort kjörgögn eigi að berast til viðkomandi aðila í almennum bréfpósti eða í tölvupósti. Sé kosið í póstkosningu ber íbúi ábyrgð á að koma kjörseðli á kjörstað fyrir lokun kjörstaða, 16. maí.
Beiðnir sendist á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is eða í síma 450 2300.
Ísland.is
Nánari upplýsingar um ýmislegt er varðar sveitarstjórnarkosningar má finna á Ísland.is. Þar er meðal annars hægt að glöggva sig á leiðbeiningum um hvernig eigi að kjósa og rétti kjósenda á því að fá aðstoð við að kjósa.