112 dagurinn
miðvikudaginn 11. febrúar kl. 17:00–19:00
Vesturbyggð
Sjá á korti
Árlegi 112 dagurinn verður miðvikudaginn 11. febrúar.
- Viðbragðsaðilar á Bíldudal bjóða ykkur velkomin í nýju slökkvistöðina á milli kl. 17:00 og 19:00. Slysavarnadeildin Gyða býður upp á veitingar.
- Viðbragðsaðilar á Patreksfirði verða í Sigurðarbúð, húsi björgunarsveitarinnar Blakks, á milli kl. 17:00 og 19:00. Slysavarnadeildin Unnur býður upp á góðgæti. Þá fer formleg afhending húsnæðis til Blakks frá Odda hf. fram kl. 17:15.
Hlökkum til að sjá ykkur.