Svæðistónleikar Nótunnar
laugardaginn 18. apríl kl. 14:00–18:00
Félagsheimili Patreksfjarðar
Sjá á korti
Svæðistónleikar Nótunnar 2026, uppskeruhátíð allra tónlistarskóla á Íslandi. Aðgangur er ókeypis og allir sem vilja velkomnir að koma og hlusta á meðan húsrúm leyfir.
Efnisskráin hefst á Nótutón í flutningi nemenda frá Stykkishólmi, forspil sem sérstaklega var samið til opnunar Nótutónleika. Þá kemur sameiginlegt atriði allra skólanna, stórhljómsveit spilar saman Rock Around the Clock. Síðan verða flutt 2-4 lög frá hverjum skóla sem valin hafa verið til flutnings af þessu tilefni. Framlag Vesturbyggðar eru fjögur lög: Sigfríður Sól Guðmundsdóttir leikur verk eftir Philip Glass á píanó, Hildur Ása Gísladóttir mun syngja einsöng með hljómsveit í Will You Still Love Me Tomorrow, Svanur Einarsson syngur og leikur lag Laufeyjar, From the Start, á gítar með Einari Ostaszewski ásamt rytmasveit og hópur frá Tálknafirði ásamt nemendum frá Patreksfirði og Barðaströnd flytja lagið Söngur Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson.