Blús milli fjalls og fjöru 2021
3. til 4. september kl. 20:00–23:00
Félagsheimili Patreksfjarðar
Sjá á korti
Á föstudagskvöldið er Blússveit Þollýar, en hún var fyrst til að koma á blúshátíð í sjóræningjahúsið á sínum tíma og er við hæfi að hún og hljómsveit setji hátíðina í ár. Með henni eru þungavigtarmenn í músik, Tryggvi Hufner, Friðrik Karlsson, Jón Guðjónsson og Fúsi Óttars.
Seinna bandið eru kornungir strákar sem kalla sig Fógetarnir. Þeir eru fantagóðir rokkblúsarar og minna um markt á strákana frá í fyrra, sem voru ógleymanlegir. Þetta er nýtt tríó, og okkur er sannur heiður að fá að kynna þá á svið í fyrsta sinn.
Á laugardagskvöldið er einnig nýtt band sem sett var saman fyrir þessa hátíð með valinkunnum listamönnum um áratuga skeið R G P 103 blús band. Þar er góður hópur góðra blúsara, Rúnar Þór Pétursson, Gunnar Örn Sigurðsson, Árni Björnsson, Pjétur Stefánsson og Steinar Helgason.
Að endingu verður rokkblúsbandið Johnny and the rest. Þeir komu hér á Patró fyrir um 20 árum og gerðu allt vitlaust í félagsheinilinu þá, sem og þeir gera eflaust núna líka. Það er okkur sönn ánægja að kynna tvær nýjar hljómsveiti á svið í fyrsta sinn, svo nú er að fjölmenna á Pató og blúsa, rokka og skemmta okkur ærlega eftir þrengingarnar undanfarna 15 mánuði.
Miðasala verður við innganginn og einnig er hægt að panta miða í síma 899 1120 Palli, 863 0957 Guðni, 846 8346 Sigga Dísa.