Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 4 dögum síðan.

Byggða­bragur — Kynning á niður­stöðum

  • þriðjudaginn 9. júní kl. 15:30–16:30

  • Fjarkynning
    Sjá á korti

Rann­sókna­setur í byggða- og sveit­ar­stjórn­ar­málum við Háskólann á Bifröst kynnir helstu niður­stöður úr byggð­ar­brags­rann­sókn í fjar­fundi þriðju­daginn 9. júní kl. 15:30.

Rannsóknin er hluti af verkefninu Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags sem Fjórðungssamband Vestfirðinga hlaut 9,4 milljóna styrk fyrir úr byggðaáætlun. Hún fól í sér viðtöl, netkönnun meðal íbúa og söfnun annarra gagna. Markmiðið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á byggðabrag, sjálfsmynd íbúa og ímynd hins nýja sveitarfélags og skapa grunn að skýrri framtíðarsýn.

Helstu niðurstöður verða kynntar á fjarfundinum en einnig verður birt skýrsla með nánari niðurstöðum á næstu vikum. Niðurstöðum hennar verða gerð góð skil á heimasíðu sveitarfélagsins.

Kynning er um hálftíma og svo gefst tími fyrir umræður eða fyrirspurnir.

Hlekkur á fundinn er hér.