Hoppa yfir valmynd

Fjár­öfl­un­ar­bingó — Félags­mið­stöðin Tunglið

Haldið verður bingó á Hópinu á Tálknafirði sunnudaginn 1. mars kl. 15:00. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Hægt er að kaupa aukaspjald á 500 krónur og spjald í pásu á 300 krónur. Athygli er vakin á því að enginn posi verður á staðnum. Veglegir vinningar eru í boði og rennur allur ágóði til fjáröflunar félagsmiðstöðvarinnar Tunglsins fyrir Samfés 2026.