Hoppa yfir valmynd

FLIKK fræðsla

  • þriðjudaginn 8. september kl. 16:00–17:00

  • Patreksskóli — matsalur
    Sjá á korti

Áttu barn sem glímir við kvíða eða viltu fræðast betur um kvíðavanda barna?
Við bjóðum foreldrum, forsjáraðilum og öðrum áhugasömum á gagnlegan fyrirlestur um kvíðavanda hjá 5–12 ára börnum og nýtt stafrænt meðferðarúrræði, FLIKK – ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka.
Hafdís Einarsdóttir og Þuríður Hallgrímsdóttir Viðar, sálfræðingar, fjalla meðal annars um:
• hvað kvíði er og hvernig hann birtist hjá börnum
• hvernig foreldrar geta stutt börn sín í daglegu lífi
• hvernig FLIKK virkar og hverjir geta nýtt sér úrræðið
• hvernig snemmtæk íhlutun getur skipt sköpum
FLIKK er gagnreynt netmeðferðarúrræði byggt á hugrænni atferlismeðferð (HAM) fyrir foreldra 5–12 ára barna með kvíðaraskanir.
  • 8. september
  • 16:00–17:00
  • Patreksskóli – matsalur
  • Fyrir foreldra 5–12 ára barna, forsjáraðila og aðra áhugasama
Skoða viðburð á Facebook