Fræðsla um málþroska barna
mánudaginn 16. mars kl. 20:00–22:00
Fræðslukvöld fyrir foreldra um hvernig hægt er að styðja við orðaforða og málþroska barna á vegum stoðþjónustu Vesturbyggðar.
Viðburðinum verður einnig streymt í Tálknafjarðarskóla á Tálknafirði og í Muggstofu á Bíldudal þannig að foreldrar í fleiri byggðarkjörnum geti fylgst með.
Foreldrar eru hvattir til að mæta og kynna sér hvernig hægt er að styðja við málþroska barna á einfaldan og hagnýtan hátt.