Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 3 mánuðum síðan.

Geld­ings­skor­ar­dalur og strand togarans Dhoon — Gengið með land­vörðum

  • laugardaginn 20. júlí kl. 13:00–15:00

  • Bílastæði við Geldingsskorardal
    Sjá á korti

✨ Geldingsskorardalur og strand togarans Dhoon í friðlandinu Látrabjargi ✨
Gengið með landvörðum á sunnanverðum Vestfjörðum 🥾🥾
Laugardaginn 20. júlí mun landvörður á Látrabjargi leiða göngu frá bílastæðinu við Geldingsskorardal að bjargbrún og fræða áhugasama um strand togarans Dhoon í desember 1947 og hið stórkostlega björgunarafrek sem fylgdi.
Þeir sem vilja geta gengið lengra og endað göngu sína á Bjargtöngum. Ef þátttakendur vilja skilja bíl eftir á Bjargtöngum og fá far með landverði að Geldingsskorardal fyrir gönguna má hafa samband í síma 822-4091 (Birgitta) með góðum fyrirvara.
Vegalengd: 2 km
Tími: 1-2 klst.
Búnaður: Fatnaður eftir veðri
Nánari leiðbeiningar:
Til að komast að bílastæðinu við Geldingsskorar dal er beygt í átt að Keflavík af Látraheiði. Keyrt er sem leið liggur í átt að Keflavík ca. 4 km þar til komið er að vegvísi sem leiðir að Geldingsskorardal. Sá vegur er keyrður á enda og þar mun landvörður bíða gesta klukkan 13:00 á tilsettum degi.
Nánar um náttúruverndarsvæði á Vestfjörðum:
https://ust.is/…/natturuver…/fridlyst-svaedi/vestfirdir/
Skoða viðburð á Facebook