Gullkistan Vestfirðir — Opin hús á Tálknafjöri
laugardaginn 25. júlí kl. 12:00–14:00
Tálknafjörður
Sjá á korti
Laugardaginn 25. júlí kl. 12:00-14:00, á bæjarhátíðinni Tálknafjöri, opna fyrirtæki og þátttakendur í Gullkistunni dyr sínar, sýna hvað býr að baki og bjóða gestum að kynnast hugviti, menningu og kraftinum sem mótar svæðið. Komdu í heimsókn og kynntu þér kröftugt atvinnu- og menningarlíf á Tálknafirði.
Gullkistan Vestfirðir er lifandi vettvangur þar sem gestir fá að kynnast fólkinu, fyrirtækjunum, menningunni og hugmyndunum sem skapa verðmæti á Vestfjörðum.
Verkefnið dregur fram fjölbreytileikann á svæðinu og býður gestum að sjá hvað gerist á bak við tjöldin hjá fyrirtækjum, stofnunum, listafólki og frumkvöðlum. Þetta er tækifæri til að fá innblástur, mynda tengsl og njóta sín í ekta vestfirskri stemmningu.
Eftirfarandi fyrirtæki bjóða heim í opið hús:
- Arctic Fish – Norðurbotni
- Arnarlax – Gileyri seiðaeldisstöð
- Eysteinn handverkshús – Eysteinseyri
- Tungusilungur – Eysteinseyri
- Dunhagi – Sveinseyri
- Nordic Fishleather – Höfn 25
- Hópið – Hrafnadalsvegi
- Hjá Jóhönnu – Strandgötu 36
- Sjótækni – Hafnarhúsinu
- Vesturbyggð – Strandgötu 38
- Fisksjálfsalinn – Við Strandgötu
Á markaðnum 14:00-17:00:
- Gallerý Lilja
- Pollurinn