Hoppa yfir valmynd

Heima­slóðir — Ganga á Lónfell

  • sunnudaginn 5. júlí kl. 10:00–14:00

  • Friðlandið Vatnsfirði
    Sjá á korti

Lengd: 3-4 klst., 6 km og rúmlega 300 m hækkun.

Gangan hefst við bílaplan á sunnanverðri Dynjandisheiði, skömmu eftir Þverdalsvatn sem er greinilegt á vinstri hönd ef keyrt er til norðurs. Fararstjóri er Elva Björg Einarsdóttir. 

Gengið er á Lónfell sem rís 756 m yfir sjávarmáli upp af Penningsdal og Vatnsfirði um stikaða og stórgrýtta leið í spor landnámsfólks. Í Landnámu segir að Hrafna-Flóki Vilgerðarson hafi gengið á fjall/fjöll í norðri eftir að hafa haft vetursetu í landinu fyrstur manna með sínu fólki. Þaðan hafi hann séð fjörð fullan af hafís og því gefið landinu nafnið Ísland. Frá þeim stað sem Hrafna-Flóki byggði hús sitt, á Flókagrund í Vatnsfirði, rís Lónfell hæst fjalla til norðurs. Við höfum því leyft okkur að ætla að það sé fjallið sem landið fékk nafnið af. Það er því töluvert á sig leggjandi að standa í sporum hans. Við lok göngu kíkjum við á rústir bústaðar hans og ekki er úr vegi að líta við á sýningunni um Hrafna-Flóka í Gamla bænum á Brjánslæk og fá sér kaffi og meððí.

Við pökkum nesti í bakpoka og borðum hádegismat á leiðinni, munum að klæða okkur eftir veðri og taka með göngustaf ef við svo kjósum. 

Gangan er í boði verkefnisins Umhverfis Vesturbyggð og hluti af Heimaslóðum þar sem heimamenn ganga um Vesturbyggð.