Heimaslóðir — Ganga um Mörk, Lambagil og Hörgsnes
laugardaginn 4. júlí kl. 10:00–14:00
Friðlandið Vatnsfirði
Sjá á korti
Upphaf göngu er á bílastæði í Mörk í friðlandinu í Vatnsfirði á afleggjara sem liggur upp að gömlu Þingmannaheiðinni rétt austan Vatnsdalsár.
Lengd göngu er 3-4 klst., 8-9 km og um 250 m hækkun + 800 m og óveruleg hækkun. Fararstjóri er Elva Björg Einarsdóttir.
Gengið er að Smiðju og upp með Þingmannaá, um skógræktina og inn Vatnsdalinn austanverðan að Lambagiljum sem eru fyrir miðju Vatnsdalsvatni að austanverðu. Genginn er hringur, upp aflíðandi hjalla inn að Lambagiljum og við vatnsborðið heimleiðis á ný. Við ljúkum svo göngunni í Hörgsnesi, keyrum þangað á bílum og lítum á Gíslahelli og Hörginn. Gangan er yfirleitt um góðan stíg og erfiðleikastig óverulegt.
Afbrigði við leiðina fyrir þau sem ekki vilja ganga alla leið inn í dalinn er að ganga að Smiðju, upp með Þingmannaá um skemmtilegan stíg og að skógrækt. Einnig má kíkja við í Hörgsnesi í lok ferðar. Stígurinn er skýr og leiðir fólk um undraheim friðlandsins.
Við höfum með okkur nesti og pössum að klæða okkur samkvæmt veðri. Gott að hafa bakpoka eða tösku til að geyma aukaföt og nesi í. Mörgum finnst gott að nýta sér göngustaf-i við gönguna.
Gangan er í boði verkefnisins Umhverfis Vesturbyggð og hluti af Heimaslóðum þar sem heimamenn ganga um Vesturbyggð.