Hoppa yfir valmynd

Heima­slóðir — Skóg­ar­ganga á Patreks­firði

  • þriðjudaginn 21. júlí kl. 17:00–19:00

  • Litlidalur
    Sjá á korti

Upphaf göngu er við skilti Skógræktarfélags Patreksfjarðar á Mikladal, neðan við Wembley.

Gengið er upp í Litladal og Litladalshringinn, komið niður og gengið að Wembley og gegnum skóginn aftur að upphafsstað. Samtals er gangan um 5-7 km eftir áhuga göngumanna og veðri þann daginn. Gangan er öll eftir stígum en sumstaðar eru þeir grófir.  Sagt verður frá skógræktinni og lífinu og tilverunni á Patreksfirði nútímans í bland við söguna. Fararstjóri er Guðrún Anna Finnbogadóttir.