Hoppa yfir valmynd

Heima­slóðir — Söng­ganga upp að Hnjúks­vatni

  • laugardaginn 25. júlí kl. 10:30–12:30

  • Gamla rafstöðin á Bíldudal
    Sjá á korti

Við göngum sönglandi upp að Hnjúksvatni, þegar þar upp er komið setjumst við niður á steinana og njótum þess að sjá fuglana við vatnið. Tilvalið að taka með sér smá snarl til að gæða sér á uppi á toppnum. Lengd göngu er um 1,5 klst., um 5 km í heildina. Um 300m hækkun. Leiðin er að hluta á vegaslóða en efsti partur göngunnar er um þýft gras og mólendi.